Fínn árangur á McCullagh International
Sundhópurinn er nú kominn heim eftir vel heppnaða þátttöku á McCullagh International mótinu.
Heilt yfir var verkefnið mjög árangursríkt og umgjörðin öll til fyrirmyndar. Ferðalagið var þægilegt, hótelið gott og maturinn sömuleiðis frábær.
Frammistaða og lágmörk
Hópurinn var til fyrirmyndar á mótinu og var árangurinn í lauginni góður. Það getur reynst áskorun að synda hratt á miðju tímabili þegar æfingaálag er í hámarki. Sumir sundmenn eru fljótari að jafna sig eftir nokkra léttari daga á meðan aðrir eiga erfiðara með að finna hámarkshraðann við þessar aðstæður, sem er eðlilegt á þessum tímapunkti tímabilsins. Flest sund voru nálægt bestu tímum eða innan við 2% frá þeim, auk þess sem nokkrar stórar persónulegar bætingar litu dagsins ljós.
Nokkrir sundmenn tryggðu sér lágmörk fyrir alþjóðleg meistaramót sumarsins:
Norðurlandamót Æskunnar (NÆM):
Alicja Julia Kempisty: 200m skriðsund á tímanum 2:09,98.
Evrópumeistaramót Unglinga:
Hólmar Grétarsson: 400m fjórsund á tímanum 4:33,83.
Karl Björnsson: 50m bringusund á tímanum 0:29,25.
Vala Dís Cicero: 100m skriðsund (0:56,76), 200m skriðsund (2:02,65) og 400m skriðsund (4:23,31).
Evrópumeistaramót í 50m laug:
Birgitta Ingólfsdóttir: 50m bringusund á tímanum 31,41.
Snorri Dagur Einarsson: 50m bringusund á tímanum 28,19.
Vala Dís Cicero: 200m skriðsund á tímanum 2:02,65.
Verðlaunahafar á mótinul.
Gullverðlaun:
Katja Lilja Andriysdóttir í 800m skriðsundi á tímanum 9:14,91.
Silfurverðlaun:
Birgitta Ingólfsdóttir í 50m bringusundi (31,41).
Eva Margrét Falsdóttir í 200m fjórsundi (2:22,62).
Hólmar Grétarsson í 400m fjórsundi (4:33,83).
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir í 50m flugsundi (27,67).
Bronsverðlaun:
Guðmundur Leo Rafnsson í 200m baksundi (2:05,74).
Hólmar Grétarsson í 200m fjórsundi á nýju persónulegu meti (2:09,37).
Snorri Dagur Einarsson í 50m bringusundi (28,28).
Vala Dís Cicero í 400m skriðsundi (4:23,31).
Við óskum sundfólkinu til hamingju með glæsilega frammistöðu, og hlökkum til að fylgjast með þeim á þeim mótum sem eru framundan.
