Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sundsamband Íslands fagnaði 75 ára afmæli með glæsibrag

13.02.2026

Sundsamband Íslands hélt upp á 75 ára afmæli sitt með hátíðlegri athöfn í húsakynnum Þróttar í gærkvöldi, 12. febrúar, þar sem saga og samfélag sundíþróttarinnar á Íslandi var í brennidepli.  Dagurinn  í gær var tileinkaður sjálfboðaliðum.

Hátíðin hófst á ávörpum gesta og forystumanna íþróttahreyfingarinnar. Meðal þeirra sem stigu á stokk voru Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Björn Sigurðsson, formaður SSÍ, Þórður Árni Hjaltested, formaður Íþróttasambands Fatlaðra og Fríða Kristín Jóhannesdóttir, varaformaður Sundfélags Hafnarfjarðar. Þá sá eftirherman og söngvarinn Eyþór Ingi um að skemmta gestum með sínum einstaka hætti.

Heiðursmerki voru veitt fyrir óeigingjarnt star finnan hreyfingarinnar.  Hápunktur kvöldsins var afhending silfur- og gullmerkja SSÍ til einstaklinga sem hafa látið til sín taka innan hreyfingarinnar. Þá var útnefndur sérstakur sjálfboðaliði afmælisársins.

Silfurmerki

Hálfdán Freyr Örnólfsson – Fyrir að synda Drangeyjarsund sem er 7 km leið frá Drangey að Reykjanesi á Reykjaströnd. Hann synti á 2 klst og 34 min þann 31. júlí til 1. ágúst 2025.

Fríða Kristín Jóhannesdóttir – Mótastjóri, stjórnarmeðlimur í SH og ýmis störf innan sundhreyfingarinnar.

Bjarney Guðbjörnsdóttir – Stjórnarmaður, sjálfboðaliði, farastjóri, dómari, þjálfari og fyrir önnur störf innan sundhreyfingarinnar.

Leifur Guðni Grétarsson – Stjórnamaður, mótastjóri, tæknimál og lykilmaður í sundhreyfingunni.

Þórður Árni Hjaltested – Formaður Íþróttasambands fatlaðra sem er öflugur samstarfsaðili SSÍ.

Andri Stefánsson – Framkvæmdastjóri ÍSÍ fyrir góð og fagleg samskipti við sundhreyfinguna til fjölda ára.

Falur Helgi Daðason – Stjórnarmaður í ÍRB til tugi ára, fyrrum formaður sunddeildar Keflavíkur, tæknimaður, sjúkraþjálfari og ofur skipuleggjandi.

Guðni Þór Gunnarsson – Tæknimaður, bókari og pappírskall sem mætir þar sem konan hans bókar hann.

Inga Birna Sveinsdóttir – Öflugur sjálfboðaliði á mótum SSÍ sem gengur í öll þau störf sem inna þarf að hendi. Inga hefur starfað við hin ýmsu störf í sundhreyfingunni til fjölda ára.

Helena Olgeirsdóttir – Stjórnarmaður í foreldrafélagi SH, ofur skipuleggjandi í öllum þeim verkum sem gera þarf í öflugu félagi auk annara starfa innan sundhr.

Hlynur Skagfjörð Sigurðsson – Sjúkraþjálfari sem farið hefur í fjölda keppnisferða með landsliðum SSÍ.

Jón Karl Helgason kvikmyndagerðarmaður fyrir heimildamyndir um sund, annarsvegar „Sundið“ sem er heimildamynd um keppni tvega einstaklinga til að verða fyrstir Íslendinga til að synda yfir Ermasund og hinsvegar myndina „Sundlaugasögur“ sem ramma inn þá menningu okkar sem nú hefur hlotið sérstaka varðveislu hjá UNESCO og fullyrði ég að lóð Jóns Karls vegi þungt á þeim skálum.

Hannes Már Sigurðsson - Fyrrum afreksmaður í sundi og yfirþjálfari hjá Stjörnunni til tugi ára fyrir störf sín innan sundhreyfingarinnar.

Simon Knight - Formaður stjórnar sunddeildar Ármanns, þjálfari og fyrir önnur störf innan sundhreyfingarinnar.

Þórdís Bjarney Guðmundsdóttir - Yfirdómari, stjórnarkona, farastjóri og sjálfboðaliði ÍA 2025.

Hafrún Kristjánsdóttir Sálfræðingur - Prófessor í Sálfræði og deildarstjóri íþróttafræðum við HR. Hafrún hefur unnið mikið með okkar helsta keppnisfólki á efsta stigi íþróttarinnar og hefur látið sig varða andlega þætti Íþróttaiðkunar.

Ólafur Páll Gunnarssson – Útvarpsmaður. Óli Palli hefur verið lykilmaður í útvarpi ÍA sem hefur verið ein helsta tekjulind sunddeildar ÍA í gegnum tíðina.

Ingunn Ríkharðsdóttir – Fyrrum dómari, þulur, farastjóri og allt í öllu innan sunddeildar ÍA og fyrir önnur störf innan sundhreyfingarinnar.

Berglind Júlía Valdimarasdóttir – Fyrrum alþjóðadómari fyrir SSÍ sem dæmdi meðal annars á Smáþjóðaleikunum árið 2005 og hefur tekið virkað þátt í sjálfboðaliðastarfi hjá sunddeild ÍA.

Hákon Ágústsson – Ljósmyndari og sjálfboðaliði innan sundhreyfingarinnar.

Kjartan Birgisson – Dómari, ljósmyndari, sjálfboðaliði hjá sundfélagin Ægi og fyrir önnur störf innnan sundhreyfingarinnar.

Sigrún Þorsteinsdóttir – Formaður sunddeildar Stjörnunnar í Garðabær, dómari, verðlaunaður sjálfboðaliði innan Garðabæjar og fyrir önnur störf innan sundhreyfingarinnar.

Gullmerki

Hörður Oddfríðarson – Fyrrum formaður stjórnar SSÍ og stjórnamaður til tugi ára. Hörður er formaður garpanefndar EA og á sæti í grapanefnd WA. Hörður er en þann dag í dag virkur í sjálfboðaliðastarfi innan SSÍ og alltaf tilbúinn þegar að kallið kemur og það eru fáir sem eytt hafa eins mörgum klukkutímum til sundíþróttarinnar á Íslandi.

Ingibjörg Ýr Pálmadóttir – Ein af okkar reynslumestu dómurum, yfirdómari, stjórnamaður í dómaranefnd til margra ára, alþjóðadómari og leiðbeinandi á dómaranámskeiðum og sjálfboðaliði til margra ára fyrir sundfélagið Ægir.

Jón Hjaltason - Fyrrum stjórnarmaður í stjórn SSÍ , alþjóðadómari og formaður dómaranefndar til fjölda ára, leiðbeinandi á dómaranámskeiðum KR ingur og sjálfboðaliði innan sundhreyfingarinnar til margra ára.

Hreggviður Þorsteinsson – Fyrrum þjálfari og formaður hjá sundfélaginu Ægi. Öflugur stuðningsmaður sundíþróttarinnar sem meðal annars mikill baráttumaður fyrir byggingu innilaugar í Laugardal.

Sjálfboðaliði afmælisárs SSÍ

Sérstaka athygli vakti útnefning Viktoríu Gísladóttur sem Íþróttaeldhuga og sjálfboðaliða 75 ára afmælisárs SSÍ.

"Það má segja Viktoría sé hjarta sundhreyfingarinnar en hún hóf sjálfboðaliðastarf árið 2007 og hefur verið yfirdómari frá 2012. Hún er lifandi dæmi um sannan eldhuga sem hélt störfum áfram löngu eftir að börn hennar hættu að æfa."

Hún hefur leitt dómaranefndina í tæp tíu ár og er þekkt fyrir að vera fyrst á staðinn og síðust úr húsi á mótum, alltaf með gleði og fagmennsku að leiðarljósi.

Kvöldinu lauk á léttu nótunum þar sem gestir gátu gætt sér á veitingum og spjallað. Allir gestir fengu jafnframt veglegan gjafapoka að skilnaði sem innihélt gjafir frá Amora, Önnu Eiríks, Craft, Sóley Organics, Hydrate cocowater og Circolo súkkulaði

Kærar þakkir allir sem tóku þátt!

Til baka