Beint á efnisyfirlit síðunnar

Þjálfaranámkeið SSÍ - 1

04.02.2026

 

 SSÍ-1 þjálfaranámskeið Sundsambands Íslands fyrir árið 2026 fór fram í janúar og febrúar. Námskeiðið er byggt á þrepaskiptu menntakerfi World Aquatics og hefur það markmið að efla fagþekkingu sundþjálfara og styðja við framþróun íþróttarinnar. SSÍ-1 er alþjóðlega viðurkennt þjálfaranámskeið í flestum Evrópulöndum.

Námskeiðið er að mestu kennt í fjarnámi, auk verklegs hluta sem að þessu sinni fór fram í Laugardalslaug. Að þessu sinni tóku 12 þátttakendur þátt í námskeiðinu og var almenn ánægja með það.

SSÍ hóf að halda þetta námskeið árið 2023 og hafa nú um 50 þátttakendur lokið náminu hjá SSÍ.

Kennarar á námskeiðinu voru Ingi Þór Einarsson og Ragnar Guðmundsson.

Til baka