EM25 hefst á morgun - 10 sundmenn að keppa
Evrópumeistaramótið í 25m laug hefst á morgun, 2.desember, í Lublin, Póllandi. Keppt verður í undanrásum, undanúrslitum og úrslitum næstu daga fram á sunnudaginn 7.desember.
Ísland er með stórt lið á EM25 að þessu sinni, eða samtals 10 sundmenn: Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Birnir Freyr Hálfdánarson, Símon Elías Statkevicius, Birgitta Ingólfsdóttir, Snorri Dagur Einarsson, Guðmundur Leo Rafnsson, Ýmir Chatenay Sölvason, Snæfríður Sól Jórunnardóttir, Vala Dís Cicero, og Hólmar Grétarsson.
Einnig náði Einar Margeir Ágústsson lágmarki en ákvað að taka ekki þátt að þessu sinni þar sem hann var að hefja háskólanám í Bandaríkjunum við University of South Carolina, þar sem hann hefur nú þegar staðið sig frábærlega á mótum með skólaliðinu.
Það er langt síðan Ísland hefur verið með svo stórt lið á Evrópumeistaramóti sem sýnir hvað íslenska sundfólkið okkar er að bæta sig og hvað framtíðin er björt.
Spennan byrjar strax á morgun þegar sex sundmenn stinga sér til sunds, og Ísland verður einnig með lið í boðsundi.
Jóhanna Elín, Birnir Freyr og Símon Elías munu keppa í 50m flugsundi, Birgitta og Snorri Dagur munu keppa í 100m bringusundi, og Guðmundur Leo í 200m baksundi. Svo mun íslenska liðið taka þátt í 4x50m skriðsund boðsundi kvenna.
Það verður spenanndi að sjá hverjir bæta sig, og jafnvel hvort eitthvað af okkar fólki komist áfram í undanúrslit og/eða úrslit.
Heildardagskrá íslenska liðsins er hér fyrir neðan:
-
Þriðjudagur 2.des
- 50m flugsund kvenna: Jóhanna Elín
- 50m flugsund karla: Birnir Freyr og Símon Elías
- 100m bringusund kvenna: Birgitta
- 100m bringusund karla: Snorri Dagur
- 200m baksund karla: Guðmundur Leo
- 4x50m skriðsund boðsund kvenna: Ísland
- Miðvikudagur 3.des
- 100m fjórsund karla: Birnir Freyr
- 200m skriðsund karla: Ýmir
- 200m skriðsund kvenna: Snæfríður Sól og Vala Dís
- 4x50m fjórsund boðsund blandað: Ísland
-
Fimmtudagur 4.des
- 100m flugsund kvenna: Jóhanna Elín
- 100m flugsund karla: Birnir Freyr
- 200m bringusund kvenna: Birgitta
- 100m baksund karla: Guðmundur Leo
- 4x50m skriðsund boðsund blandað: Ísland
-
Föstudagur 5.des
- 100m skriðsund kvenna: Jóhanna Elín, Snæfríður Sól og Vala Dís
- 100m skriðsund karla: Birnir Freyr, Guðmundur Leo og Ýmir
-
Laugardagur 6.des
- 50m baksund karla: Guðmundur Leo
- 50m bringusund kvenna: Birgitta
- 50m bringusund karla: Snorri Dagur
- 50m skriðsund kvenna: Jóhanna Elín, Snæfríður Sól og Vala Dís
- 50m skriðsund karla: Símon Elías og Ýmir
- 200m flugsund karla: Hólmar
-
Sunnudagur 7.des
- 400m fjórsund karla: Hólmar
- 4x50m fjórsund boðsund kvenna: Ísland
- 4x50m fjórsund boðsund karla: Ísland
Hægt er að fylgjast með gangi mála á samfélagsmiðlum Sundsambands Íslands, og í beinni á RÚV.



