Beint á efnisyfirlit síðunnar

Syndum - Landsátak í sundi

02.11.2025

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ)  og Sundsamband Íslands vilja vekja athygli á að Syndum – landsátak í sundi, sem verður sett með formlegum hætti mánudaginn 3. nóvember kl. 16:30 í Ásvallalaug.

 

Ávörp flytja:

- Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ

- Björn Sigurðsson, formaður Sundsambands Íslands

- Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar

Að loknum ávörpum munu börn frá Sundfélagi Hafnarfjarðar synda átakið af stað.

 

Syndum er heilsu- og hvatningarátak í sundi sem stendur frá 1.- 30. nóvember.  Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.  Átakið var formlega sett á laggirnar árið 2021 og fer nú fram í fimmta skipti. Í átakinu taka landsmenn sig saman og synda oftar og meira. Í fyrra náðu landsmenn að synda samtals 31.271 km sem gera nærri 24 hringir í kringum landið. 

  

Syndum - Landsátak í sundi, er viðburður innan Íþróttaviku Evrópu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

  

Það er margt sem við getum gert til að bæta og viðhalda líkama og sál og allt telur. Íslendingar hafa verið duglegir að stunda sund enda búum við vel að góðum sundlaugum um allt land. 

Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Einnig er sund frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.

  

Syndum saman í kringum Ísland. Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu www.syndum.is Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland. Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins. 

 

 

Logo, company name
Description automatically generated

Til baka