Beint á efnisyfirlit síðunnar

EM23 hófst í morgun– Snorri í úrslit í 50m bringusundi!

26.06.2025

Evrópumeistaramótið EM23 hófst í morgun í Šamorín í Slóvakíu, þar sem sex íslenskir sundmenn tóku þátt í undanrásum. Á þessu móti komast aðeins átta bestu keppendurnir í hverri grein áfram í úrslit, ólíkt flestum öðrum mótum þar sem 16 fá tækifæri.

Snorri Dagur Einarsson stóð sig einstaklega vel í 50 metra bringusundi og tryggði sér sæti í úrslitum. Hann synti á tímanum 27,98, sem er aðeins frá hans besta (27,79), og er sjöundi maður inn í úrslit kvöldsins. Hann keppir í úrslitum í kvöld kl. 18:59 að staðartíma (16:59 að íslenskum tíma) – við fylgjumst spennt með!

Aðrir keppendur í morgun voru:

  • Birgitta Ingólfsdóttir synti 50m bringusund á 32,68 og hafnaði í 16. sæti, aðeins frá sínum besta tíma.
  • Guðmundur Leo Rafnsson synti 200m baksund á 2:03,87, einnig aðeins frá hans besta, og endaði í 24. sæti.
  • Einar Margeir Ágústsson synti 50m bringusund á 28,35 og lenti í 16. sæti, nálægt sínum besta tíma.
  • Eva Margrét Falsdóttir synti 200m fjórsund á 2:21,98, sem skilaði henni 12. sæti, aðeins frá sínum besta tíma.
  • Birnir Freyr Hálfdánarson synti 100m flugsund á 55,08 og endaði í 40. sæti.

Flott frammistaða hjá íslenska hópnum í morgun – áfram Ísland!

 

Hægt er að fylgjast með:

Beint streymi:
https://euroaquaticstv.com/stream/qinS5_lCSqVgNtjwwHuBQsZVCG4ogbkzDLKl27yapu4

Úrslit og dagskrá:
https://europeanaquatics.org/u23-swimming-samorin-2025/schedule-results/#/sports-schedule/SWM/

Til baka