Beint á efnisyfirlit síðunnar

EM23 hefst í fyrramálið – sjö íslenskir sundmenn keppa í Slóvakíu

25.06.2025

 

Evrópumeistaramótið undir 23 ára (EM23) hefst í Samorin í Slóvakíu fimmtudaginn 26. júní og stendur fram á laugardag.

Ísland sendir sterkan hóp til leiks – sjö keppendur og fimm fylgdarmenn taka þátt fyrir hönd Sundsambands Íslands.

Keppendur:

  • Birgitta Ingólfsdóttir, SH
  • Birnir Freyr Hálfdánarson, SH
  • Einar Margeir Ágústsson, ÍA
  • Eva Margrét Falsdóttir, ÍRB
  • Guðmundur Leo Rafnsson, ÍRB
  • Snorri Dagur Einarsson, SH
  • Símon Elías Statkevicius, SH

Fylgdarfólk

  • Þjálfarar: Eyleifur Jóhannesson, Malden Tepavcevic og Steindór Gunnarsson
  • Nuddari: Hólmfríður Hilmarsdóttir
  • Samfélagsmiðlar: Hrafnhildur Lúthersdóttir

Keppni hefst strax í fyrramálið og verður Birgitta Ingólfsdóttir fyrst til að stinga sér til sunds í 50 metra bringusundi.

Aðrir sem synda á morgun eru:

  • Guðmundur Leo Rafnsson – 200 metra baksund
  • Snorri Dagur Einarsson og Einar Margeir Ágústsson – 50 metra bringusund
  • Birnir Freyr Hálfdánarson – 100 metra flugsund
  • Eva Margrét Falsdóttir – 200 metra fjórsund

Hér er hægt að fylgjast með

Beint streymi:
https://euroaquaticstv.com/stream/qinS5_lCSqVgNtjwwHuBQsZVCG4ogbkzDLKl27yapu4

Úrslit og dagskrá:
https://europeanaquatics.org/u23-swimming-samorin-2025/schedule-results/#/sports-schedule/SWM/

 

Til baka