Íslandsmeistaramót aldursflokka 2025 – Glæsilegt mót haldið á Akureyri
Íslandsmeistaramót aldursflokka 2025 fór fram á Akureyri um helgina. Mótið hófst á föstudagsmorgun og lauk nú rétt fyrir hádegi í dag, sunnudag. Alls tóku tíu lið þátt og komu 225 keppendur víðs vegar að af landinu. Keppt var í aldursflokkum 11 ára og yngri, 12–13 ára og 14–15 ára.
Íslandsmótið er stigakeppni milli félaga og var það Sundfélag Hafnarfjarðar (SH) sem stóð uppi sem sigurvegari að þessu sinni. Lið SH sigraði með afgerandi yfirburðum og hlaut 910 stig.
Hörð barátta var um næstu sæti, en einungis þrjú stig skildu að Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB) og ÍBR, sameiginlegt lið Reykjavíkur. ÍRB endaði í öðru sæti með 656 stig og ÍBR í því þriðja með 653 stig. Einnig voru veitt verðlaun fyrir prúðasta lið mótsins og að þessu sinni hlaut Sundfélag Akranes þau verðlaun.
Einstaklingsverðlaun – stigahæstu sundmenn mótsins
Að venju voru veitt verðlaun fyrir stigahæstu einstaklinga í aldursflokkum 12–13 ára og 14–15 ára. Stigin eru reiknuð samkvæmt stigatöflu Alþjóðasundsambandsins (WA).
- 14–15 ára stúlkur: Alicja Julia Kempisty (SH) sigraði með 1720 stig fyrir 200m skriðsund, 200m fjórsund og 400m skriðsund.
- 14–15 ára drengir: Jón Ingvar Eyþórsson (Breiðablik) hlaut 1487 stig fyrir 200m skriðsund, 200m fjórsund og 100m skriðsund.
- 12–13 ára stúlkur: Karen Anna Orlita (ÍA) sigraði með 1317 stig fyrir 200m skriðsund, 100m fjórsund og 200m fjórsund.
- 12–13 ára drengir: Andrej Tepavcevic (SH) fékk 1031 stig fyrir 200m skriðsund, 100m fjórsund og 400m skriðsund.
Lokastaða í stigakeppni félaga:
- SH – 910 stig
- ÍRB – 656 stig
- ÍBR – 653 stig
- Breiðablik – 422 stig
- Óðinn – 370 stig
- UMFA – 133 stig
- ÍA – 52 stig
- Stjarnan – 34 stig
- UMFB – 34 stig
Glæsilegt mót og hlökkum til næsta árs
Mótið tókst afar vel í alla staði og eiga heimamenn á Akureyri miklar þakkir skildar fyrir frábærar móttökur, gott skipulag og ekki síst blíðskaparveður yfir alla helgina.
Á lokahófinu, sem lauk rétt í þessu, var tilkynnt að næsta Íslandsmeistaramót aldursflokka árið 2026 verði haldið í Reykjanesbæ 19. – 21 júní – og erum við strax farin að hlakka til.