Þjóðsöngurinn hljómaði fjórum sinnum á lokadegi sundkeppninnar í Andorra og 40 verðlaun eru komin í hús fyrir Ísland !
Þjóðsöngurinn hljómaði fjórum sinnum á lokadegi sundkeppninnar í Andorra og 40 verðlaun eru komin í hús fyrir Ísland !
Íslenska sundfólkið fer heim með flest verðlaun af öllum þjóðum sem tóku þátt í sundkeppni Smáþjóðaleikana, 40 verðlaun alls, 16 gull, 12 silfur og 12 brons.
Birgitta Ingólfsdóttir tryggði Íslandi fyrsta gullið í dag í 50m bringusundi og synti alveg við sinn besta tíma. Snorri Dagur Einarsson kom næstur einnig í 50m bringusundi og bæði sigraði og setti mótsmet. Næstur á eftir honum með silfurverðlaun varð Einar Margeir Ágústsson.
Hólmar Grétarsson tryggði okkur þriðja gullið í dag þegar hann synti gríðarlega vel 400m fjórsund, hann var einnig alveg við sinn besta tíma.
Síðasta gullið í dag kom í boðsundi þegar blandaða boðsundssveitin sigraði með nokkrum í 4x100m, en sveitina skipuðu þau Guðmundur Leo Rafnsson, Einar Margeir Ágústsson, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Snæfríður Sól Jórunnardóttir. Þetta er boðsundssveitin sem mun synda á Heimsmeistaramótinu í Singapore seinna í sumar.
Í 50m flugsundi kvenna syntu þær Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Snæfríður Sól mjög vel og tryggði Snæfríður sér silfur og Jóhanna brons í greininni. Birnir Freyr Hálfdánarson var svo næstur í 50m flugsundi og tryggði hann sér silfurverðlaun. Ylfa Lind Kristmannsdóttir náði sér í silfur í 50m baksundi og bætti tíma sinn í greininni.
Eva Margrét Falsdóttir synti 400m fjórsund og tryggði sér bronsverðlaunin. Sólveig Freyja Hákonardóttir varð í 5. sæti í 400m fjórsundi. Veigar Hrafn Sigþórsson synti einnig 400m fjórsund og varð í 10 sæti.
Glæsilegur árangur hjá sundfólkinu í Andorra, alls 40 verðlaun, en það eru 9 fleiri verðlaun en íslenska sundfólkið fékk á Smáþjóðaleikunum á Möltu 2023.
Við óskum sundfólkinu öllu innilega til hamingju með frábæran árangur í Andorra!