Beint á efnisyfirlit síðunnar

Við verðum með 12 keppendur í úrslitum á Smáþjóðaleikunum í kvöld !

29.05.2025

Við verðum með 13 keppendur í úrslitum á Smáþjóðaleikunum í kvöld !

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir mun synda 50m skriðsund og er hún með annan besta tímann inn í úrslitin. Þá mun Símon Elías Statkevicius einnig synda 50m skriðsund, en hann er með besta tímann inn í úrslitin.

Þær Eva Margrét og Birgitta Ingólfs synda 200m bringusund, Einar Margeir syndir einnig 200m bringusund.

Snæfríður Sól og Vala Dís synda 400m skriðsund, en Snæfríður er skráð með annan besta tímann. Ylfa Lind er skráð með annan besta tímann í 100m baksundi í kvöld. Guðmundur Leo og Bergur Fáfnir syntu vel 100m baksund í morgun og er Guðmundur Leo með besta tímann inn í úrslitin. Nadja Djurovic og Jóhanna Elín synda til úrslita í 100m flugsundi og Birnir Freyr syndir einnig 100m flugsund.

 

Síðan verða hörkuspennandi boðsund í 4 x 200m skriðsundi karla og kvenna.

 

Minnum á að hægt er að fylgjast með:

Streymi: https://anoc.tv/sportitem/682b2cc84aca6a1a4da2ddb1

Til baka