Beint á efnisyfirlit síðunnar

Eitt Íslandsmet, þrjú gull, fjögur silfur og þrjú brons í sundlauginni í Andorra í kvöld !

29.05.2025

Eitt Íslandsmet, þrjú gull, fjögur silfur og þrjú brons í sundlauginni í Andorra í kvöld !

Snæfríður Sól Jórunnardóttir synti feiknavel 400m skriðsund í kvöld og bætti Íslandsmetið sitt sem hún setti á Möltu fyrir tveimur árum um 3 sekúndur. Hún synti á 4:17,79 og varð önnur eftir mjög harða keppni við maltnesku stúlkuna Sashö, en aðeins 2/100 skildu þær að. Ylfa Lind tryggði sér sín önnur gullverðlaun á mótinu þegar hún sigraði í 100m baksundi eftir mikla keppni. Jóhanna Elín Guðmundsdóttir synti mjög vel 100m flugsund og sigraði þar á flottum tíma og bætti sig um 1 sekúndu.  Nadja Djurovic kom næst í mark í flugsundinu og tryggði sér silfur en hún synti nákvæmlega upp á brot á sínum besta tíma.

Kvennasveitin í 4x 200m skriðsundi sigraði með yfirburðum, en sveitin var skipuð þeim Evu Margréti Falsdóttur, Völu Dís Cicero, Snæfríði Sól Jórunnardóttur og Nadju Djurovic.

Jóhanna Elín tryggði sér silfurverðlaun í 50m skriðsundi, flottur dagur hjá henni með 2 gull og eitt silfur.   Einar Margeir synti gríðarlega vel 200m bringusund þegar hann bætti tíma sinn í greininni um 3 sekúndur. Hann varð annar eftir gríðarlega keppni við Finn Kemp frá Lúxemborg, en aðeins voru 4/100 á milli þeirra.

Eva Margrét Falsdóttir tryggði sér þriðja sætið í 200m bringusundi þar sem hún synti alveg við sinn besta tíma.

Guðmundur Leo Rafnsson synti vel 100m baksund hann varð í þriðja sæti og bætti tíma sinn í greininni. Birnir Freyr Hálfdánarson synti 100m flugsund og tryggði sér bronsverðlaunin.

Karlasveitin í 4x 200m skriðsundi tryggði sér þriðja sætið í mjög spennandi keppni, en sveitina skipuðu þeir Guðmundur Leo, Magnús Víðir, Veigar Hrafn og Ýmir Chatenay.

Símon Elías Statkevicius synti 50m skriðsund og var aðeins frá sínum besta tíma og varð í fjórða sæti. Birgitta Ingólfsdóttir synti 200m bringusund og varð í sjötta sæti aðeins frá sínum besta tíma. Vala Dís Cicero synti vel 400m skriðsund og bætti tíma sinn og varð í fjórða sæti. Bergur Fáfnir Bjarnason synti 100m baksund og varð sjöundi í sundinu örlítið frá tímanum sem hann synti á í morgun.

Enn og aftur mjög góður dagur í lauginni í Andorra, en á morgun kl 10:00 hefst síðasti hluti mótsins. Þar eigum við sundfólk í öllum greinum og bíðum spennt eftir að fylgjast með þeim í fyrramálið.

Þess ber að lokum að geta að íslenska sundfólkið er í forystu hvað fjölda verðlaunapeninga varðar. Íslenska sundfólkið er komið með 12 gull, 8 silfur og 10 brons. Á morgun bætast svo vonandi fleiri verðlaun við.

 

Til baka