Þjóðsöngur Íslands hljómaði sex sinnum í sundhöllinni í Andorra í kvöld og eitt Landsmet var sett
Þjóðsöngur Íslands hljómaði sex sinnum í sundhöllinni í Andorra í kvöld og eitt Íslandsmet var sett.
Úrslitahluti á degi tvö byrjaði með látum í kvöld. Eva Margrét Falsdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði í fyrstu grein dagsins, 200m fjórsundi og bætti einnig tíma sinn um 1 sekúndu. Birgitta Ingólfsdóttir tryggði Íslandi annað gull í 100m bringusundi og þriðja gullið kom einnig í 100m bringusundi þegar Einar Margeir synti þar til sigurs. Þau syntu bæði alveg við sína bestu tíma í greininni. Snæfríður Sól Jórunnardóttir náði í fjórða gullið í 200m skriðsundi þar sem hún synti á mjög fínum tíma. Fimmta gullið kom síðan í 4x 100m fjórsundi kvenna en sveitina skipuðu þær Ylfa Lind, Birgitta Ingólfs, Nadja Djurovic og Snæfríður Sól Jórunnardóttir.
Nýtt Landsmet og sjötta gullið kom í 4x100m fjórsundi karla, en þeir syntu á 3:43,14 og bættu gamla metið síðan 2023 um rúmar 3 sekúndur ! Þeir gerðu enn betur og bættu einnig mótsmetið í greininni.
Sveitina skipuðu þeir Guðmundur Leó Rafnsson, Snorri Dagur Einarsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius
Vala Dís Cicero kom í mark næst á eftir Snæfríði í 200m skriðsundi og tryggði sér silfurverðlaun og var hún alveg við sinn besta tíma í greininni.
Ylfa Lind Kristmannsdóttir tryggði sér bronsverðlaunin í 200m fjórsundi og bætti hún tíma sinn um tvær sekúndur,
Birnir Freyr Hálfdánarson tryggði sér bronsverðlaun í 200m fjórsundi karla
Bronsverðlaunin komu einnig í hlut Snorra Dags Einarssonar í 100m bringusundi og Ýmir Chatenay Sölvason fékk einnig brons í dag, í 200m skriðsundi.
Veigar Hrafn Sigþórsson varð fimmti í 200m fjórsundi á sínum besta tíma. Eva Margrét Falsdóttir synti einnig 100m bringusund í dag og varð þar í fimmta sæti. Katja Lilja Andryisdóttir synti 1500m skriðsund, hún varð fjórða og var alveg við sinn besta tíma.
Þeir Andri Már Kristjánsson og Hólmar Grétarsson syntu 1500m skriðsund og varð Andri í fimmta sæti og Hólmar í því sjötta.
Virkilega flottur dagur hjá okkar fólki í dag, 6 gull, 1 silfur og 4 brons.
Mótið heldur að sjálfsögðu áfram í fyrramálið, en þá fer fram næstsíðasti dagur mótsins hjá sundfólkinu.