Sundfólkið hélt áfram að standa sig vel á Smáþjóðaleikunum í morgun og erum við með keppendur í úrslitum í öllum greinum í kvöld.
Sundfólkið hélt áfram að standa sig vel á Smáþjóðaleikunum í morgun og erum við með keppendur í úrslitum í öllum greinum í kvöld.
Þær Eva Margrét Falsdóttir og Ylfa Kristmannsdóttir hefja kvöldhlutann á 200m fjórsundi. Eftir þeim koma þeir Birnir Freyr Hálfdánarson og Veigar Hrafn Sigþórsson einnig í 200m fjórsundi. Katja Lilja Andryisdóttir og þeir Hólmar Grétarsson og Andri Már Kristjánsson synda síðan 1500m skriðsund.
Það verður hörkuspennandi keppni í 100m bringusundi kvenna þar sem þær Eva Margrét og Birgitta Ingólfsdóttir keppa, en Birgitta er með annan besta tímann inn í úrslitin í dag. Í 100m bringusundi karla verða þeir Snorri Dagur Einarsson og Einar Margeir Ágústsson, en Snorri er með besta tímann inn í úrslitin í dag.
Í 200m skriðsundi kvenna munu þær Snæfríður Sól og Vala Dís Cicero keppa í úrslitum. Það verður æsispennandi að fylgjast með 200m skriðsundi karla en allir átta sem komust í úrslit syntu á sömu sekúndunni í morgun 1:56.
Að lokum verður mjög spennandi að fylgjast með boðsundssveitunum okkar í 4x 100m fjórsundi.
Streymi er hér: https://anoc.tv/sportitem/682b2cc84aca6a1a4da2ddb1
Lifandi úrslit https://gsse-andorra2025.com/en/schedule-and-results/