Smáþjóðaleikar hefjast á morgun í Andorra
Smáþjóðaleikarnir fara fram í Andorra dagana 26.-31. maí. Ísland sendir 106 keppendur, og að þessu sinni á Sundsamband Íslands tuttugu af þeim keppendum.
Þátttökurétt á Smáþjóðaleikum eiga Evrópuþjóðir sem eru með Ólympíunefndir sem eru viðurkenndar af Alþjóðaólympíunefndinni (IOC) og eru með íbúatölu undir einni milljón.
Keppnisþjóðir á Smáþjóðaleikunum:
Ísland, Kýpur, Luxembourg, Andorra, Svartfjallaland, Mónakó, Malta, San Marínó og Liechtenstein.
Sundkeppnin hefst í fyrramálið með undanrásum kl 10:00 (08:00 isl) en mótið stendur fram á föstudag. Undanrásir hefjast kl 10:00 eins og fyrr sagði og úrslita hlutar hefjast kl 17:00.
Sundliðið mætti til Andorra síðastliðinn miðvikudag til að aðlagast Andorra, en smáríkið er í rúmlega 1000m hæð yfir sjávarmáli.
Sundliðið er skipað eftirfarandi einstaklingum og þau keppa í eftirfarandi greinum:
Birnir Freyr Hálfdánarson 100m og 50m skriðsund, 50m flugsund, 50m baksund og 200m fjórsund
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir 100m og 50m skriðsund, 100m og 50m flugsund
Snorri Dagur Einarsson 200m, 100m og 50m bringusund
Simon Elias Statkevicius 100m og 50m flugsund, 50m skriðsund
Eva Margrét Falsdóttir 50m, 200m og 100m bringusund, 200m og 400m fjórsund
Ylfa Lind Kristmannsdóttir 200m, 100m og 50m baksund, 200m fjórsund
Katja Lilja Andriysdóttir 800m og 1500m skriðsund
Birgitta Ingólfsdóttir 200m, 100m og 50m bringusund
Nadja Djurovic 200m og 100m flugsund
Sólveig Freyja Hákonardóttir 800m skriðsund, 200m flugsund og 400m fjórsund
Vala Dis Cicero 200m og 400m skriðsund
Snæfríður Sól Jórunnardóttir 50m, 100m, 200m, 400m skriðsund, 50m flugsund. og 50m baksund.
Einar Margeir Ágústsson 200m, 100m og 50m bringusund
Guðmundur Leo Rafnsson 200m, 100m og 50m baksund
Hólmar Grétarsson 1500m skriðsund, 200m flugsund og 400m fjórsund
Ýmir Chatenay Sölvason 100m 200m og 400m skriðsund
Bergur Fáfnir Bjarnason 200m og 100m baksund
Veigar Hrafn Sigþórsson 200m og 400m fjórsund
Magnús Víðir Jónsson 200m, 400m og 800m skriðsund
Andri Már Kristjánsson 800m og 1500m skriðsund
Fylgdarfólk eru þau:
Hrafnhildur Lúthersdóttir Flokksstjóri/miðlun
Þjálfari Eyleifur Ísak Jóhannesson
Þjálfari Dado Fenrir Jasminuson
Þjálfari Steindór Gunnarsson
Hlynur Skagfjörð Sigurðsson Sjúkraþjálfari
Einnig standa vaktina tveir dómarar frá SSÍ, en þau eru:
Viktoría Gísladóttir
Tómas Gísli Guðjónsson.
Úrslit og keppnisdagskrá: Schedule and results - Jocs dels Petits Estats d'Europa
Streymi af keppnum: Í fyrsta sinn verður hægt að fylgjast með öllum keppnum Smáþjóðaleikanna á ANOC.tv: