SH leiðir í fyrstu deild og sveit SH setti unglingamet
15.12.2023
Til bakaBikarkeppni SSÍ hófst í kvöld og leiðir Sundfélag Hafnarfjarðar í fyrstu deild, bæði í karla og kvennaflokki.
Sundfélag Hafnarfjarðar leiðir einnig í karlaflokki í 2. deild en Sundfélag Akranes leiðir í 2. deild kvenna.
Eitt unglingamet var sett í kvöld þegar unglingasveit SH syntir 4x100m fjórsund á tímanum 3;43,39.
Sveitina skipuðu þeir : Bergur Fáfni Bjarnason, Snorri Dagur Einarsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Veigar Hrafn Sigþórsson.
Keppnin heldur áfram í fyrramálið kl 9:30
Bikar stig hluti 1, 1 deild kvk.pdf
Bikar stig hluti 1, 1 deild kk.pdf
Bikar stig hluti 1, 2 deild kvk.pdf
Bikar stig hluti 1, 2 deild kk.pdf