Beint á efnisyfirlit síðunnar

Anton Sveinn með annan besta tímann í heiminum í dag í 200m bringusundi

05.03.2023

Anton Sveinn hefur undanfarna daga tekið þátt í Tyr mótaröðinni í Fort Lauderdale í Bandaríkjunum. 

Anton Sveinn synti í nótt 200m bringusund á tímanum 2:10.86 og varð í öðru sæti, en þessi tími er annar besti tími ársins eins og staðan er í dag. Anton fékk hörkukeppni í sundinu en sigurvegarinn var Bandaríkjamaðurinn Will Licon á tímanum 2:10.77

Besti tími Antons er 2:08,74 sem hann synti á HM í Búdapest síðasta sumar. 

Þetta er fínn árangur hjá Antoni sem er í hörkuæfingum þessa dagana.

Hann kemur heim í lok mars og tekur þátt í Íslandsmeistaramótinu hér heima, 1. - 3 apríl í Laugardalslaug.

Til baka