Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sundfólk ársins 2022

19.12.2022

Sundfólk ársins 2022


Til samræmis við samþykkt stjórnar SSÍ frá 19. desember 2022 og samþykktir SSÍ um val á sundfólki ársins tilkynnum við hér með að Snæfríður Sól Jórunnardóttir er sundkona ársins og Anton Sveinn McKee er sundmaður ársins.

Snæfríður syndir fyrir Álaborg í Danmörku og Anton Sveinn er úr Sundfélagi Hafnarfjarðar.   

Við val á sundmanni ársins er stuðst við eftirfarandi viðmið:  

  1. FINA stig úr bestu grein sundfólksins eru vegin saman  í báðum brautarlengdum.
  2. Árangri samkvæmt úrslitum á Íslandsmeistaramótum í báðum brautarlengdum.
  3. Árangri einstaklings (personal best) á IOC, FINA, LEN, GSSE, NSF.
  4. Íslandsmeti í samanburði við alþjóðleg met í báðum brautarlengdu.
  5. Staða sundmanns á heimslista í desember 2022 er vegin saman í báðum brautarlengdum.
  6. Þátttaka í landsliðsverkefnum.
  7. Árangur í landsliðsverkefnum.
  8. Ástundun sundfólksins.
  9. Íþróttamannsleg framkoma sundfólksins.

 

Við mat á árangri vegur árangur í langri braut 100% og í styttri braut 75%.

 

Sundkona ársins 2022 er Snæfríður Sól Jórunnardóttir

Snæfríður Sól  er 22 ára gömul og syndir fyrir Álaborg í Danmörku. Hún náði bestum árangri íslenskra kvenna í sundi á árinu 2022, samkvæmt útgefnum viðmiðum SSÍ.

Snæfríður Sól varð í 15. sæti í 200m skriðsundi á EM50 í Róm í ágúst 2022. Í nóvember bætti hún 12 ára gamalt Íslandsmet í 100m skriðsundi og í desember tvíbætti hún það met á HM25 í Melbourne í Ástralíu. Þar komst hún einnig í 16 manna úrslit og varð í 15. sæti af 64 keppendum.  Hún bætti um betur þegar hún hafnaði í ellefta sæti á sama móti þegar hún synti á nýju Íslandsmeti í 200m skriðsundi. Snæfríður er búin að bæta það met í tvígang á síðustu tveimur mánuðum.

Snæfríður Sól setti því samtals 5 Íslandsmet á árinu.

Frábær árangur hjá Snæfríði Sól á þessu ári en hún varð einnig Bikarmeistari með liði sínu Álaborg í nóvember.

Snæfríður Sól er í sjötta sæti á lista yfir hröðustu sundkonur í Evrópu þessa stundina í 200m skriðsundi og í 28. sæti á heimslistanum í sömu grein.

Snæfríður synti á sínum yngri árum í Hveragerði fyrir Sundfélagið Hamar, en flutti til Árósa þegar hún var 8 ára gömul. Hún keppti á Ólympíuleikum ungmenna sem haldnir voru í Buenos Aires 2018. Snæfríður Sól keppti á sínum fyrstu Ólympíuleikum í Tokyo 2021.

Snæfríður er góð fyrirmynd jafnt sem sundkona og íþróttamaður utan laugar.

Snæfríður Sól stundar nú Sálfræði nám í Háskólanum í Álaborg.

Snæfríður Sól mun keppa á Reykjavík International Swim Meet sem fram fer í janúar n.k.

Snæfríður Sól er verðugur fulltrúi sundhreyfingarinnar og hún er vel að viðurkenningunni komin.

Við hjá SSÍ óskum Snæfríði innilega til hamingju með að vera valin Sundkona ársins 2022.

 

Sundmaður ársins 2022 er Anton Sveinn McKee

Anton Sveinn McKee er nýorðinn 29 ára og er sundmaður úr Sundfélagi Hafnarfjarðar. Hann var  valinn sundmaður ársins, fimmta árið í röð.

Anton Sveinn synti á Heimsmeistaramótinu í 50m laug í Búdapest í júní þar sem hann komst í 8 manna úrslit í 200m bringusundi og varð í 6. sæti á nýju Íslandsmeti. Það mátti litlu muna að hann myndi tryggja sér verðlaun í þeirri grein. Á sama móti varð hann í 17. sæti í 100m bringusundi.

Á Evrópumeistaramótinu í Róm synti hann einnig inn í úrslit og varð í sjötta sæti.

Nú í desember synti Anton á Heimsmeistaramótinu í 25m laug og varð í 10. sæti í 200m bringusundi.

Árangur Antons á árinu er stórgóður.  Á spænska meistaramótinu í apríl sigraði hann 100m og 200m bringusundi þegar hann synti á nýju Íslandsmeti í 200m bringusundi. Á þessu áru hefur hann bætt eigið met í 200m bringusundi í þrígang.

Anton Sveinn er í 12. sæti á heimslistanum í 200m bringusundi og í 11. sæti á lista yfir hröðustu sundmenn í Evrópu í sömu grein.

Anton býr í Vestur-Virginíuríki þar sem hann stundar æfingar, en eins og flestir vita var hann eini íslenski íþróttamaðurinn sem náði A- lágmarki fyrir ÓL í Tokyo 2020.

Anton Sveinn er góð fyrirmynd jafnt sem sundmaður og íþróttamaður utan laugar. Hann hefur sýnt góða ástundun og mikla þrautseigju. Ólympíuleikarnir í Tókýó voru þeir þriðju sem Anton hefur tekið þátt í og nú undirbýr hann sig fyrir fjórðu Ólympíuleikana í París 2024 og skipar sér þar með í sérflokk meðal íslenskra íþróttamanna.

Anton hefur verið eljusamur/duglegur við að miðla reynslu sinni og þekkingu til ungra og upprennandi sundmanna á undanförnum misserum.

Anton er afar vel að tilnefningunni kominn og við hjá SSÍ óskum Antoni Sveini til hamingju með að vera valinn Sundmaður ársins 2022.

 

 

 

Til baka