11 í úrslitum á NM kl 16:00 í dag.
Síðasti hluti Norðurlandameistaramótsins fer fram kl 16:00 í dag.
Sundsambandið er með 11 einstaklinga í úrslitum í dag og fyrstur til að synda verður Veigar Hrafn en hann er með fjórða besta tímann inn í úrslit í 400m fjórsundi í flokki unglinga.
Freyja Birkisdóttir mun synda 800m skriðsund en þar er hún með fimmta besta tímann.
Í 100m flugsundi kvenna munu þær Ylfa Lind og Vala Dís synda til úrslita en þær eru með sjöunda og áttunda besta tímann.
Sunna Arnfinnsdóttir er með sjötta besta tímann inn í úrslit í 200m baksundi.
Þeir Patrik Viggó og Bergur Fáfnir synda 100m baksund en Patrik er með fjórða besta tímann inn í úrslit og Bergur áttunda besta tímann.
Þær Kristín Helga og Vala Dís eru í úrslitum í 100m skriðsundi, Kristín með fimmta besta tímann og Vala áttunda besta tímann.
Í 200m fjórsundi synda þær Eva Margrét sem er með sjötta besta tímann og Sunneva sem er með áttunda besta tímann.
Hægt er að fylgjast með streymi hér