Beint á efnisyfirlit síðunnar

Spennandi keppni í Reykjanesbæ á AMÍ 2022

25.06.2022

AMÍ 2022 hófst í gær í Reykjanesbæ, mótið er fimm hlutar og er stigakeppni á milli félaga. 

Nú þegar þrír hlutar eru búnir þá er mikil og spennandi keppni milli ÍRB og SH um fyrsta sætið og einnig er mikill keppni um þriðja sætið á milli sunddeildar Breiðabliks og sundfélagsins Óðins.

Mótið heldur áfram í fyrramálið kl 9:30  og svo hefst seinni hluti kl 16:00. 

 

Stigastaða eftir 3 hluta : 

ÍRB 539

SH 500

Breiðablik 236

Óðinn 235

Ægir 189

Ármann 123

Fjölnir 61

ÍA 49

UMFB 40

UMFA 20

KR 20

Stjarnan 4

ÍBV -

Til baka