Beint á efnisyfirlit síðunnar

Snæfríður Sól með Íslandsmet á ÓL í Tokyo

26.07.2021

Snæfríður Sól Jórunnardóttir synti rétt í þessu 200m skriðsund á Ólympíuleikunum í Tokyo, sem eru hennar fyrstu leikar. Snæfríður gerði sér lítið fyrir og synti á nýju Íslandsmeti, synti á tímanum 2:00.20 en gamla metið er síðan í mars á þessu ári 2:00.50. Hún varð í 22 sæti af 29 keppendum.

Snæfríður var sátt með sundið sitt í morgun að sögn Eyleifs Jóhannessonar landsliðsþjálfara og er spennt að halda áfram, en hún syndir 100m skriðsund á miðvikudaginn.

Glæsilegur árangur hjá Snæfríði að setja Íslandsmet í sinni fyrstu grein á Ólympíuleikum.

 

Til baka