Beint á efnisyfirlit síðunnar

Yfirþjálfari óskast hjá Sundfélagi Vestra

07.07.2014Yfirþjálfari óskast hjá Sundfélagi Vestra á Ísafirði

Um er að ræða kennslu og yfirumsjón með þjálfun á vegum félagsins.
Viðkomandi verður að geta unnið með börnum og unglingum og verið þeim góð fyrirmynd.

Stundaskrá næsta vetrar:
- Sundskóli HSV, 1. – 4. bekkur (6-10 ára) alla virka daga.
- Sundfélag Vestra, 13 – 18 ára. 8 sinnum í viku.

Umsókn sendist til formanns Sundfélagsins Vestra fyrir 1. ágúst nk. á netfangið pom@snerpa.is.
Til baka