Staðan fyrir lokadaginn á AMÍ - Telpnamet í gærkvöldi
15.06.2014Nú er að hefjast fimmti og næstsíðasti hluti á AMÍ 2014. Krakkarnir fengu litla hvíld milli hluta í gær en stóðu sig engu að síður ótrúlega vel á lengstu hlutum mótsins. Helst ber að nefna telpnamet sveitar ÍRB er þær bættu fjögurra ára gamalt met í 4x50m fjórsundi. Gamla metið, sem einnig var í eigu ÍRB, var 2.06,89 en þær Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir, Gunnhildur Björg Baldursdóttir og Stefanía Sigurþórsdóttir syntu á 2.06,59.
Stigastaðan er svohljóðandi fyrir lokadaginn:
1. ÍRB 789 stig
2. Ægir 410
3. SH 342
4. Breiðablik 257
5. Óðinn 217
6. KR 150
7. Fjölnir 127
8. ÍA 100,5
9. Ármann 67,5
10. UMFA 52
11. ÍBV 36
12. Rán 19
13. Hamar 5
14. Stjarnan 4
15. Vestri 3