Beint á efnisyfirlit síðunnar

Snæfríður Sól synti 50m skriðsund á Stockholm Open

07.04.2024

Snæfríður Sól Jórunnardóttir synti í morgun 50m skriðsund á Stockhom Open á tímanum 25,71 og varð í 9 sæti og synti sig inn í B úrsltin sem fram fóru í dag.

Hún bætti tíma sinn í greininni sem var 25,86.  Hún sigraði svo í B úrslitum í dag og bætti aftur tíma sinn, synti á tímanum 25,52  og nálgast óðfluga íslandsmet Söruh Bateman sem er 25,24.

Snæfríður syndir 100m skriðsund í fyrramálið og verður spennandi að fylgjast með henni.

Til baka