Beint á efnisyfirlit síðunnar

Dómaranámskeið á næstunni

05.02.2024

Næstu dómaranámskeið á vegum dómaranefndar SSÍ verða haldið sem hér segir:

7. febrúar 2024 kl. 18:00 í Pálsstofu, Laugardalslaug í Reykjavík

28. febrúar 2024 kl. 18:00 í Pálsstofu, Laugardalslaug í Reykjavík

20. mars 2024 kl. 18:00 í Ásvallalaug, Hafnarfirði

24. apríl 2024 kl. 18:00 í Pálsstofu, Laugardalslaug í Reykjavík

Skráning á dómaranámskeið sendist á domaranefnd@iceswim.is  með upplýsingum um nafn, kennitölu, síma og hvaða sundfélagi/deild viðkomandi er tengdur.

Til að verða almennur sunddómari þarf sunddómaranemi frá félagi á höfuðborgarsvæðinu og/eða af Suðurnesjum að safna a.mk 55 punktum á einu ári samkvæmt stigakerfi SSÍ. Af þessum 55 punktum þurfa a.m.k. 25 punktar að ávinnast á mótum SSÍ.

Dómaranemi frá félögum annars staðar á landinu/utan höfuðborgarsvæðisins þurfa að safna a.m.k. 55 punktum á þremur árum samkvæmt sama kerfi.

Stigakerfi dómaranefndar SSÍ:

Sunddómarar safna punktum fyrir störf sem dómarar á sundmótum.

SSÍ mót og alþjóðleg mót              5 punktar fyrir hvern mótshluta,

Opin mót                                             3 punktar fyrir hvern mótshluta,                                               

Héraðsmót                                          3 punktar fyrir hvern mótshluta,               

Innanfélagsmót                                3 punktar fyrir hvern mótshluta.

Til baka