Beint á efnisyfirlit síðunnar

EMU 2023 er lokið

09.07.2023

Sjötti dagur á EMU hófst í morgun á 400m skriðsundi kvenna.  Þar syntu þær Freyja Birkisdóttir og Katja Lija. Freyja varð í 44. sæti á tímanum 4:30,39 og Katja Lilja varð í 50. sæti á tímanum 4:34,98, þær voru báðar um 3 sekúndur frá sínum bestu tímum.

 

Strákarnir tóku þátt í 4x100m fjórsundi, þeir syntu á tímanum 3:50, 97 og urðu í 18. sæti.

 

Þar með hafa íslensku keppendurnir lokið keppni á Evrópumeistaramóti unglinga.  Það að hafa átt þrjá einstaklinga í 16. manna úrslitum og litlu munaði að við hefðum átt einn í 8. manna úrslitum er stórgóður árangur. Reyndar hefur sundfólk á vegum SSÍ ekki náð jafn góðum árangri í 12 ár.

Þetta flotta sundfólk kemur heim reynslunni ríkari eftir flott mót.

 

Til hamingju krakkar og njótið þess að vera komin í sumarfrí 😊

Myndir með frétt

Til baka