Beint á efnisyfirlit síðunnar

Opna Íslandsmótið í Víðavatnssundi 2023

05.07.2023

Fimmtudaginn 20. júlí nk. stendur SJÓR ásamt Sundsambandi Íslands fyrir Opna Íslandsmótinu í víðavatnssundi.

 

Keppnin fer fram í Nauthólsvík og hefst kl. 17.00.

 

Boðið verður upp á þrjár keppnisvegalengdir:

  • 1 km víðavatnssund hentar sundlaugakeppnisfólki og byrjendum.
  • 3 km víðavatnssund hentar reyndu sjósunds-, þríþrautar og keppnisfólki.
  • 5 km víðavatnssund hentar þeim allra reyndustu.

 

Keppendur geta valið á milli neofren galla og venjulegra sundfata samkvæmt reglum FINA.

 

Lágmarksaldur er 16 ár og aldurskipting eftirfarandi: 16-34 ára, 35-49 ára, 50-64 ára og 65 ára og eldri.

 

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum flokki.

 

Skráning fer fram í gegnum Sportabler.

 

Verð:

5 km, 12.000 kr - mæting kl 16:30, ræst kl 17:00

3 km, 9.000 kr - mæting kl 17:00, ræst kl 17:30

1 km, 6.000 kr - mæting kl 17:30, ræst kl 18:00

 

Allir iðkendur sjósunds sem og aðrir sundmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt, hvort sem þeir eru byrjendur eða keppnisfólk.

 

Dómgæsla verður í höndum Sundsambands Íslands og Tímataka ehf sér um tímatökuna.

 

Keppendur taka þátt á eigin ábyrgð.

Bátar og kajakar munu fylgja sundfólkinu.

 

Mikilvægt er að keppendur mæti tímanlega.

 

Mótið verður fullt af spennu og skemmtun eins og undanfarin ár enda keppendur að leggja mikið á sig líkamlega.

 

Frekari upplýsingar verða á facebook viðburðinum: https://www.facebook.com/events/317934440667006

 

Kær kveðja,

Mótshaldarar

Myndir með frétt

Til baka