Beint á efnisyfirlit síðunnar

Dómara ráðstefna í Belfast.

05.12.2022
Sex Íslenskir sunddómarar héldu til Belfast á Norður Írlandi helgina 25.-27. nóvember sl. Þar tóku þeir þátt í ráðstefnu sem haldin var af LEN, Evrópska sundsambandinu en tæplega 100 dómarar frá 25 löndum voru þarna saman komnir til að kynna sér breytingar á alþjóðlegum sundreglum FINA.
Breytingarnar taka gildi um næstu áramót. Ekki er um neinar grundvallarbreytingar að ræða, en mikilvægt þótti að skýra ýmis ákvæði betur og einnig er mikilvægt fyrir sundíþróttina að þróast samhliða tækniframförum og auknum möguleikum í VAR dómgæslu (video assistant referee).
Miklar og fjörugar umræður sköpuðust en ráðstefnan var sett upp á skemmtilegan hátt með áhugaverðum erindum og vinnustofum, en einnig gátu þátttakendur sent inn fyrirspurnir sem voru þeim ofarlega í huga. 
Að sögn íslensku þátttakendanna var ráðstefnan einstaklega gagnleg, fagleg og vel skipulögð.
Næsta skref er að kynna breytingarnar og helstu niðurstöður fyrir sundhreyfinguna á Íslandi. 
Þátttakendur frá Íslandi voru þau:
Arnheiður Hjörleifsdóttir, Sundfélagi Akraness
Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, Sundfélaginu Ægi
Björn Valdimarsson, Sundfélaginu Fjölni
Viktoría Gísladóttir, Breiðabliki
Ragnheiður Birna Björnsdóttir, SH
Tómas Gísli Guðjónsson, SH

Myndir með frétt

Til baka