Beint á efnisyfirlit síðunnar

Tvö unglingamet féllu í morgun í Berlín

22.10.2022

Tvö unglingamet voru sett á World Cup mótaröðinni í Berlín í morgun.

Einar Margeir Ágústsson synti 50m bringusund á tímanum 27,94 og bætti unglingametið sem Daði Björnsson setti í september s.l, 27,95.

Nokkrum mínútum á eftir Einari stakk Daði Björnsson sér til sunds og bætti unglingametið aftur, en hann synti á 27,61. 

Flottar bætingar hjá strákunum í morgun.

Sundfólkið átti góðan morgun í Berlín, en mikið var um persónulegar bætingar. 

Freyja Birkisdóttir bætti tíma sinn í 200m skriðsundi þegar hún synti á tímanum 2.04,16, gamli tími hennar var 2.05,35. Steingerður Hauksdóttr bætti einnig tíma sinn í 100m baksundi 1.02,76, gamli tími hennar var 1.02,95. 

Birnir Freyr Hálfdánarson synti 200m fjórsund á,2.04,27 sem er nálægt hans besta tíma. Símon Elías Statkevicius synti 100m skriðsund á tímanum 51,18.

Góður morgun hjá okkar fólki í Berlín.

 

 

Til baka