Beint á efnisyfirlit síðunnar

Birnir Freyr aftur í 16 manna úrslit á EYOF

28.07.2022

Keppni á EYOF hélt áfram í morgun. Þar ber hæst að Birnir Freyr gerði sér lítið fyrir og komst aftur inn í 16 manna úrslit sem fram fara í dag.

Hann synti á tímanum 57.15 og er ellefti inn í úrslitin í dag. Frábær árangur hjá Birni annan daginn í röð.

Ýmir Chatenay Sölvason keppti í 50m skriðsundi þegar hann synti á tímanum 24.51 sem er alveg við hans besta tíma í greininni. Hann varð í 28 sæti.

Ýmir synti einnig 200m skriðsund á tímanum 1:58.01 sem er flott bæting hjá honum. Gamli tíminn hans í greininni var 1:59.83. Hann er annar varamaður inn í 16 manna úrslitin sem fram fara seinnipartinn í dag.

Sunna Arnfinnsdóttir synti 100m baksund á tímanum 1:10 33 sem er nokkuð frá hennar besta tíma, hún varð í 37 sæti.

Annar spennandi dagur framundan í lauginni þar sem við fáum a.m.k. að fylgjast með Birni Frey í 100m flugsundi og kannski Ými í 200m skriðsundi.

 

Myndir með frétt

Til baka