Beint á efnisyfirlit síðunnar

SSÍ með 5 keppendur á EYOF 2022

23.07.2022

Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem er ætluð þátttakendum á aldrinum 14-18 ára hefst þann 24. júlí næstkomandi í Banská Bystrica í Slóvakíu.

Um 6.000 þátttakendur frá 48 löndum í Evrópu taka þátt á hátíðinni og verður keppt í 10 íþróttagreinum.

Ísland sendir 38 keppendur í 8 íþróttagreinum en hér er hægt að nálgast lista yfir alla þátttakendur íslenska liðsins.

 

Íslensku keppendurnir héldu til Slóvakíu í morgun og verður setningarhátíð leikana á morgun sunnudag og keppni hefst á mánudagsmorgun.

 

Sundsamband Íslands sendir 5 keppendur til leiks að þessu sinni. 

Það eru þau:

  • Birnir Freyr Hálfdánarson úr SH sem syndir 100m flugsund og 200m fjórsund
  • Nadja Djurovic úr sunddeild Breiðabliks sem syndir 50m, 100m og 200m skriðsundi
  • Sunna Arnfinnsdóttir úr S.f Ægi,sem syndir,100m og 200m baksund
  • Ylfa Lind Kristmannsdóttir frá sunddeild Ármanns sem syndir 50m og 100m skriðsund, 100m flugsund
  • Ýmir Chatenay Sölvason úr sunddeild Breiðabliks sem syndir, 50m, 100m og 200m skriðsund
  • Klaus Jurgen Ohk þjálfari frá SH er flokksstjóri/þjálfari

 

Úrslit mótsins má finna hér: 

  

Hægt er að fylgjast með gangi mála á Instagramsíðu ÍSÍ @isiiceland og Facebooksíðu ÍSÍ 

 

Gestgjafar leikanna í Slóvakíu halda einnig úti frétta- og samfélagsmiðlum. 

 

Hér er hægt að skoða vefsíðu hátíðarinnar en einnig verður hægt að fylgjast með á Instagram (@eyof2022) og Facebook.

 

Myndir með frétt

Til baka