Beint á efnisyfirlit síðunnar

Æsispennandi keppni á AMÍ 2022 þegar einn hluti er eftir.

26.06.2022

Það er æsispennandi keppni í Reykjanesbæ nú þegar aðeins einn hluti er eftir á AMÍ 2022.

Nú þegar fjórir hlutar eru búnir þá er mikil og spennandi keppni milli ÍRB og SH um fyrsta sætið, nú munar einungis 20 stigum á milli þeirra. Einnig er mikill keppni um þriðja sætið á milli sunddeildar Breiðabliks og sundfélagsins Óðins, þar er líka 20 stiga munur.

Síðasti hluti mótsins hefst kl 16:00

Stigastaða eftir 4 hluta : 

ÍRB 657

SH 637

Breiðablik 306

Óðinn 286

Ægir 254

Ármann 154

Fjölnir 79

ÍA 69

UMFB 47

KR 22

UMFA 20

Stjarnan 4

ÍBV -

Til baka