Beint á efnisyfirlit síðunnar

Viðurkenningar eftir ÍM50 2022

10.04.2022

Á ÍM50 er hefðin að veita viðurkenningar fyrir góðan árangur á og á milli ÍM50 móta. Eftirtaldir bikarar voru veittir:

Sigurðarbikarinn - er gefinn í minningu Sigurðar Jónssonar Þingeyings fyrir besta afrek í bringusundi á Íslandsmeistaramótinu í 50m laug skv. stigatöflu FINA.
Gefandi bikarsins er fjölskylda Sigurðar.

Nafn sundmanns: Aron Þór Jónsson, Breiðablik
Grein og tími: 200m bringusund - 2:20,41
FINA stig: 724 stig


Pétursbikarinn – er gefinn í minningu Péturs Kristjánssonar sundkappa úr Sunddeild Ármanns fyrir besta afrek karla frá síðasta ÍM50 til og með ÍM50 í ár skv. stigatöflu FINA
Gefandi bikarsins er fjölskylda Péturs.

Nafn sundmanns: Anton Sveinn McKee, SH
Grein og tími: 200m bringusund - 2:11,64 (ÓL í Tokýó 2021)
FINA stig: 879 stig


Kolbrúnarbikarinn – er gefinn í minningu Kolbrúnar Ólafsdóttur sundkonu úr Sunddeild Ármanns fyrir besta afrek kvenna frá síðasta ÍM50 til og með ÍM50 í ár skv. stigatöflu FINA
Gefandi bikarsins er fjölskylda og vinir Kolbrúnar.

Nafn sundkonu: Snæfríður Sól Jórunnardóttir, AGF
Grein og tími: 200m skriðsund - 2:00,20 (ÓL í Tókýó 2021)
FINA stig: 830 stig


Ásgeirsbikarinn – er gefinn í minningu Ásgeirs Ásgeirssonar fyrrverandi forseta Íslands fyrir besta afrek á ÍM50 skv. stigatöflu FINA
Gefandi bikarsins er forseti Íslands.
Forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson veitir verðlaunin.

Nafn sundmanns: Steingerður Hauksdóttir, SH
Grein og tími: 50m baksund - 29,55
FINA stig: 761 stig

Myndir með frétt

Til baka