Beint á efnisyfirlit síðunnar

6 met féllu og fjöldi lágmarka náðust á öðrum degi ÍM50

09.04.2022

Öðrum degi af þremur er nú lokið á Íslandsmeistaramótinu í 50m laug í Laugardalslaug.

Í byrjun þessa árs hófst skráning á nýrri metaskrá með breyttum aldursflokkum, sem færir okkur í þann strúktúr sem LEN notar. Þar eru tveir aldursflokkar, Aldursflokkamet (12-14 ára konur og 13-15 ára karlar) og Unglingaflokksmet (15-17 ára konur og 16-18 ára karlar). Skráning á gömlu metaskránni heldur þó áfram út tímabilið.

Snorri Dagur Einarsson úr SH setti piltamet í 50m bringusundi þegar hann synti á tímanum 29,23 í undanrásum. Gamla metið var 29,39 og var í eigu Daða Björnssonar frá því í fyrra. Snorri synti líka undir EMU lágmarki sem fram fer í Rúmeníu í sumar. Þetta er einnig bæting á Unglingaflokksmeti karla 16-18 ára í nýju metaskránni. Í úrslitum bætti Snorri sig enn frekar og synti á 29,08 og sigraði greinina því á nýju piltameti. 

Auguste Balciunaite úr SH setti meyjamet í 100m bringusundi þegar hún synti á tímanum 1:21,86 í undanrásum. Gamla metið var í eigu hennar sjálfrar frá því í gær þar sem hún tvíbætti metið og var það 1:22,00. Í úrslitum synti Auguste á tímanum 1:21,69 og bætti metið þar með í fjórða skiptið. 

Ylfa Lind Kristmannsdóttir úr Ármanni setti nýtt telpnamet í 50m flugsundi þegar hún endaði þriðja í greininni á tímanum 29,34. Eldra metið átti hún sjálf; 29,38. 

B-Sveit SH setti piltamet í 4x100m skriðsundi karla þegar þeir syntu á tímanum 3:36,70 og höfnuðu í öðru sæti. Björn Yngvi Guðmundsson, Veigar Hrafn Sigþórsson, Bergur Fáfnir Bjarnason og Birnir Freyr Hálfdánarson skipuðu sveitina. Gamla metið áttu SH-ingar fyrir en það var 3:40,28 frá því í fyrra. 

EM lágmörk komin á mótinu:
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, SH (50m skriðsund)

NÆM lágmörk komin á mótinu:
Nadja Djurovic, Breiðablik (400m skriðsund og 100m skriðsund)
Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir, ÍRB (400 skriðsund og 800m skriðsund)
Bergur Fáfnir Bjarnason, SH (200m baksund)
Sunna Arnfinnsdóttir, Ægir (100m baksund)
Katla María Brynjarsdóttir, ÍRB (800m skriðsund)
Ylfa Lind Kristmannsdóttir, Ármanni (100m skriðsund)

EMU lágmörk komin á mótinu:
Freyja Birkisdóttir, Breiðablik (400m skriðsund og 800m skriðsund)
Birnir Freyr Hálfdánarson, SH (100m flugsund og 200m fjórsund)
Snorri Dagur Einarsson, SH (50m bringusund)
Einar Margeir Ágústsson, ÍA (50m bringusund)

EYOF lágmörk komin á mótinu:
Birnir Freyr Hálfdánarson, SH (200m fjórsund)
Nadja Djurovic, Breiðablik (100m skriðsund)
Ylfa Lind Kristmannsdóttir  (100m skriðsund)

Íslandsmeistarar dagsins:

400m fjórsund kvenna: Eva Margrét Falsdóttir, ÍRB - 5:06,68

1500m skriðsund karla: Veigar Hrafn Sigþórsson, SH - 16:50,18

50m baksund karla: Kolbeinn Hrafnkelsson, SH - 27,41

200m skriðsund kvenna: Kristín Helga Hákonardóttir, SH - 2:05,87

200m fjórsund karla: Birnir Freyr Hálfdánarson, SH - 2:12,03 (undir EMU lágmarki)

100m bringusund kvenna: Eva Margrét Falsdóttir, SH - 1:15,05

50m bringusund karla: Snorri Dagur Einarsson, SH - 29,08 (undir EMU lágmarki) 

50m flugsund kvenna: Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, SH - 27,72

100m skriðsund karla: Símon Elías Statkevicius, SH - 51,77

100m baksund kvenna: Steingerður Hauksdóttir, SH - 1:05,67

200m flugsund karla: Alexander Logi Chernyshov Jónsson, ÍRB - 2:14,35

800m skriðsund kvenna: Freyja Birkisdóttir, Breiðabliki - 9:58,47 (undir EMU lágmarki)

4x100m skriðsund karla: A-sveit SH - 3:35,48.

4x100m skriðsund kvenna: A-sveit SH - 3:55,61

Undanrásir síðasta keppnisdags hefjast kl. 9:30 í fyrramálið og úrslit 16:30.

Úrslit og ráslistar

Streymi og upptökur

Myndir með frétt

Til baka