Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sundkona og sundmaður ársins 2021

20.12.2021

Sundfólk ársins 2021

 

Til samræmis við samþykkt stjórnar SSÍ frá 20. desember 2021 og samþykktir SSÍ um val á sundfólki ársins er Snæfríður Sól Jórunnardóttir sundkona ársins og Anton Sveinn McKee sundmaður ársins. Snæfríður syndir fyrir Álaborg í Danmörku og Anton er úr Sundfélagi Hafnarfjarðar.   

Við val á sundmanni ársins er stuðst við eftirfarandi viðmið:  

  1. FINA stig úr bestu grein sundfólksins eru vegin saman  í báðum brautarlengdum.
  2. Árangur á Íslandsmeistaramótum í báðum brautarlengdum er metinn út frá úrslitum.
  3. Besti árangur einstaklings (personal best) á IOC, FINA, LEN, GSSE, NSF.
  4. Íslandsmet og alþjóðleg met í báðum brautarlengdum eru metin.
  5. Staða sundmanns á heimslista í desember 2021 er vegin saman í báðum brautarlengdum.
  6. Þátttaka í landsliðsverkefnum.
  7. Árangur í landsliðsverkefnum.
  8. Ástundun sundfólksins.
  9. Íþróttamannsleg framkoma sundfólksins.

 

Við mat á árangri vegur árangur í langri braut 100% og í styttri braut 75%.

 

Sundkona ársins 2021 er Snæfríður Sól Jórunnardóttir



Snæfríður Sól  er 21 árs gömul og syndir fyrir Álborg í Danmörku. Hún náði bestum árangri íslenskra kvenna í sundi á árinu 2021, samkvæmt útgefnum viðmiðum SSÍ.

Snæfríður synti á sínum yngri árum í Hveragerði fyrir sundfélagið Hamar, en flutti til Árósa þegar hún var 11 ára gömul. Hún keppti á Ólympíuleikum ungmenna sem haldnir voru í Buenos Aires 2018. Snæfríður Sól keppti á sínum fyrstu Ólympíuleikum í Tokyo í sumar.   

Snæfríður Sól setti Íslandsmet í 200 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í Tokyo þegar hún synti á tímanum 2:00,20 í 50m laug og varð í 22. sæti á leikunum.

Snæfríður komst í undanúrslit á Evrópumeistaramótinu í 25m laug í Kazan í nóvember og varð í 12. sæti í 200m skriðsundi.

Snæfríður er góð fyrirmynd jafnt sem sundkona og íþróttamaður utan laugar. Snæfríður er ung að árum og hún á bjarta framtíð fyrir sér. Næstu mánuði mun hún einbeita sér að því að ná lágmörkum fyrir Heimsmeistaramótið sem halidð verður í Japan í maí 2022.

Snæfríður Sól er verðugur fulltrúi sundhreyfingarinnar og hún er vel að viðurkenningunni komin.

Við hjá SSÍ óskum Snæfríði innilega til hamingju með að vera valin Sundkona ársins 2021.


 

Sundmaður ársins 2021 er Anton Sveinn McKee

 

Anton Sveinn McKee er 28 ára sundmaður úr Sundfélagi Hafnarfjarðar og hann er nú valinn sundmaður ársins fjórða árið í röð.

Anton býr í Vestur-Virginíuríki þar sem hann stundar æfingar, en eins og flestir vita var hann eini íslenski íþróttamaðurinn sem tryggði sér A- lágmark fyrir ÓL í Tokyo 2020.

Anton Sveinn tók á þessu ári aftur þátt í ISL mótaröðinni með liði Toronto Titans. Mótaröðin fór fram á Ítalíu í ár, en ISL stendur fyrir „The International Swimming League.“  Deildin var stofnuð árið 2019 og er fyrsta alþjóðlega atvinnumannadeildin í sundi. Þar keppa lið skipuð bestu sundmönnum heims.  ISL deildin er liðakeppni þar sem 10 lið eigast við og er hvert og eitt skipað 32 sundmönnum. Úr hverju liði synda tveir sundmenn hvora grein. Á mótaröðinni í ár hafnaði Anton Sveinn þrisvar í efstu  þremur sætunum og var mjög mikilvægur sundmaður fyrir Toronto Titans.

Anton Sveinn keppti á EM25 í Kazan í nóvember, en þar synti hann 200m bringusund og varð í 10. sæti. 

Í dag er Anton Sveinn er skráður í 13. sæti á heimslistanum í 200m bringusundi í 25m laug. Það eitt og sér er gríðarlega góður árangur, en að auki er hann í 7. sæti á lista yfir hröðustu sundmenn í Evrópu.

Anton Sveinn er mjög góð fyrirmynd jafnt sem sundmaður og íþróttamaður utan laugar. Hann hefur sýnt mikla og góða ástundun, en Ólympíuleikarnir í Tókýó voru þeir þriðju sem Anton hefur tekið þátt í.  Anton Sveinn hefur mikinn áhuga á að ná að keppa á sínum fjórðu Ólympíuleika í París 2024.

Áður en að þeim leikum kemur er stefnan tekin á HM50 í Japan í maí á næsta ári.

Anton hefur verið mjög örlátur við að miðla reynslu sinni og þekkingu til ungra og upprennandi sundmanna með ýmsum hætti.

Hann er afar vel að tilnefningunni kominn og við hjá SSÍ óskum Antoni Sveini til hamingju með að vera valinn Sundmaður ársins 2021.

 

Framtíðin er björt að mati SSÍ

 

Framundan eru mjög spennandi tímar hjá íslensku sundfólki að mati okkar hjá SSÍ.

Fyrst ber að geta þess að Heimsmeistaramótið í 50m laug fer fram í Japan í maí og síðan verður  Evrópumeistaramótið í 50m laug haldið í Róm á Ítalíu í ágúst 2022.

Það verður virkilega skemmtilegt að fylgjast með Antoni og Snæfríðí ásamt öllu okkar frábæra sundfólki takst á við ný og spennandi verkefni á nýju ári.

 

Til baka