Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bikarmeistarar 2021!

18.12.2021

Þá er Bikarkeppni SSÍ 2021 lokið. Mótið fór fram í Vatnaveröld í Reykjanesbæ. Sundfélag Hafnarfjarðar vann bikarmeistaratitlinn bæði í karlaflokki og Sunddeild Breiðabliks stóð upp sem siguvegari í kvennaflokki. 

Í Bikarkeppninni eru stig veitt samkvæmt gildandi stigatöflu FINA. Stigahæsta kvennalið og stigahæsta karlaliðí 1. deild hljóta sæmdarheitið BIKARMEISTARI ÍSLANDS Í SUNDI í kvenna- og karlaflokkum og gripi þá sem keppt er um. Einnig skal verðlauna það lið sem hreppir 2. sætið í 1. deild.

Á sama hátt skal verðlauna tvö efstu liðin í 2. deild. Veita skal viðurkenningu til stigahæsta kvennaliðs og stigahæsta karlaliðs keppninnar í hverri deild.

Í 2. deild varð Sundfélag Hafnarfjarðar einnig efst í karlaflokki og kvennaflokki.

Ekkert lið skiptir um deild fyrir næstu keppni þar sem ná þarf fleiri stigum en liðin í 1. deild til að taka sæti þeirra. B og C lið geta ekki farið upp í 1. deild. 

Stigastaða í lok móts var eftirfarandi:

1. deild karla

----- Sundfélag Hafnarfjarðar - BIKARMEISTARAR 15593 stig
----- Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 14335 stig
----- Sunddeild Breiðabliks 14055 stig
----- Sundfélag Akraness 12140 stig
----- Íþróttabandalag Reykjavíkur 10442 stig
----- Sundfélagið Ægir 8937 stig

1. deild kvenna

----- Sunddeild Breiðabliks - BIKARMEISTARAR 14416 stig
----- Sundfélag Hafnarfjarðar 13822 stig
----- Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 13388 stig
----- Sundfélagið Ægir  11281 stig
----- Sundfélag Akraness 9834 stig
----- Íþróttabandalag Reykjavíkur 9343 stig

2. deild kvenna

----- B - lið Sundfélags Hafnarfjarðar 9969 stig
----- B - lið Sunddeildar Breiðablik 9549 stig
----- Sunddeild Ármanns 9111 stig
----- UMSK 8258 stig

2. deild karla

----- B - lið Sundfélags Hafnarfjarðar 12607 stig
----- C - lið Sundfélags Hafnarfjarðar 9591 stig
----- Sunddeild Ármanns 8122 stig
----- UMSK 6511 stig

Innilega til hamingju Sunddeild Breiðabliks og Sundfélag Hafnarfjarðar með sigrana!

Myndir með frétt

Til baka