Beint á efnisyfirlit síðunnar

Steingerður og Snæfríður hófu keppni

02.11.2021Evrópumeistaramótið í sundi í 25m laug hófst í morgun í Kazan.

Þær Steingerður Hauksdóttir og Snæfríður Sól Jórunnardóttir byrjuðu mótið á 50m skriðsundi. Steingerður synti á tímanum 25.94 sem er besti tími hennar á árinu og varð í 40 sæti. Þess má geta að besti tími Steingerðar er 25.78.

Snæfríður Sól synti á tímanum 25.99 og varð í 41. sæti, en hún á best 25.52.

Þær náðu ekki í undanúrslit í þessari grein samt sem áður var þetta fín byrjun hjá stúlkunum.

Á morgun miðvikudag mun Anton Sveinn hefja keppni í 100m bringusundi kl. 07:29 á íslenskum tíma.

Myndir með frétt

Til baka