Beint á efnisyfirlit síðunnar

Íslandsmeistarar garpa 2021

19.09.2021

Garpahópur Breiðabliks sigraði Íslandsmót garpa 2021 (IMOC) sem lauk rétt í þessu í Laugardalslaug. 

Breiðablik endaði mótið með 824 stig og hirtu þar af leiðandi bikarinn af ríkjandi meisturum í Sundfélagi Hafnarfjarðar sem enduðu í öðru sæti með 788 stig.

Sundfélagið Ægir hafnaði í þriðja sæti með 194 stig.

61 keppandi var skráður til leiks frá 8 félögum. Þátttakendur eru heldur færri en venjulega á IMOC en síðast var Íslandsmótið haldið í maí 2019 og því von á að fólk sé enn að hrista úr sér ryðið. 

Stemningin á mótinu, sem átti upphaflega að fara fram í byrjun maí fyrr á þessu ári, var einstaklega góð en flestir keppendur nýttu mótið sem upphitun fyrir Norðurlandameistaramót Garpa sem verður haldið í Laugardalnum dagana 8-9. október nk.  

Heildarstigastaða mótsins leit svona út í lok móts:

Breiðablik    824 stig 
 SH    788 stig
 Ægir    194 stig
 Fjölnir    129 stig
 UMSB    126 stig
 ÍA    54 stig
 Stjarnan    30 stig
 UMF Óðinn    16 stig

 

Myndir með frétt

Til baka