Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nýjar lyfjareglur LÍ taka gildi

04.01.2021

Kæru félagar,

Í dag tóku gildi nýjar Alþjóðalyfjareglur (World Anti-Doping Code 2021) sem gilda munu næstu sex (6) árin. Samhliða því tóku nýjar Lyfjareglur Lyfjaeftirlits Íslands gildi, en þær byggjast á Alþjóðalyfjareglunum.

Þar sem Lyfjaeftirlit Íslands er sjálfstæð lyfjaeftirlitsstofnun, taka Lyfjareglur Lyfjaeftirlits Íslands við af Lögum ÍSÍ um lyfjamál og eru gildandi reglur í lyfjamálum á Íslandi.

Einnig tók gildi í dag nýr bannlisti WADA (The Prohibited List) en hér má finna bæði lyfjareglurnar og bannlistann: https://www.antidoping.is/loeg-og-reglur

Helstu breytingar á lyfjareglunum verða kynntar sambandsaðilum á næstunni og einnig munu ÍSÍ og Lyfjaeftirlit Íslands í sameiningu vera sérsamböndum ÍSÍ innan handar vegna skipulagningar fræðslu um lyfjamál á árinu 2021.

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við Lyfjaeftirlit Íslands

 

Til baka