Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sundkona og sundmaður ársins 2020

18.12.2020

Sundfólk ársins 2020

Í samræmi við samþykkt stjórnar SSÍ 17. desember 2020 og samþykktir SSÍ um val á sundfólki ársins er ljóst að Snæfríður Sól Jórunnardóttir sem syndir fyrir Álaborg í Danmörku er sundkona ársins 2020, og Anton Sveinn McKee úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, er sundmaður ársins 2019.  

Við val á sundmanni ársins er stuðst við eftirfarandi:  

  1. FINA stig úr bestu grein sundfólksins eru vegin saman  í báðum brautarlengdum.
  2. Árangur á Íslandsmeistaramótum í báðum brautarlengdum er metinn út frá úrslitlum.
  3. Besti árangur einstaklings (personal best) á IOC, FINA, LEN, GSSE, NSF.
  4. Íslandsmet og alþjóðleg met í báðum brautarlengdum metin.
  5. Staðsetning á heimslista í desember 2020 eru vegin saman í báðum brautarlengdum.
  6. Þátttaka í landsliðsverkefnum.
  7. Árangur í landsliðsverkefnum.
  8. Ástundun sundfólksins.
  9. Íþróttamannsleg framganga sundfólksins.

Við mat á árangri vegur árangur í langri braut 100% og stutta brautin 75%.

 

Sundkona ársins 2020 er Snæfríður Sól Jórunnardóttir


Snæfríður Sól er 20 ára og syndir fyrir Álaborg í Danmörku. Hún náði bestum árangri íslenskra kvenna í sundi á árinu 2020, samkvæmt útgefnum viðmiðum SSÍ.

Snæfríður synti á sínum yngri árum í Hveragerði fyrir sundfélagið Hamar en flutti til Árósa þegar hún var 11 ára. Hún keppti á Olympíuleikum ungmenna sem haldnir voru í Buenos Aires 2018 og tók þátt í EM25 2019 og á HM50 2019.

Snæfríður Sól synti fyrir Arhus þar til í haust en þá fylgdi hún þjálfara sínum Birni Selvejer til Alaborgar þegar hann tók við starfi Eyleifs Jóhannessonar sem nú starfar sem yfirmaður landsliðsmála hjá Sundsambandi Íslands.

Þrátt fyrir miklar sóttvarnarðgerðir hefur Snæfríður stundað æfingar í Danmörku og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Danska meistaramótið fór fram í 25 laug nú í vikunni og þar tvíbætti Snæfríður Sól Íslandsmetið sitt í 200m skriðsundi um tvær sekúndur.

Snæfríður er góð fyrirmynd jafnt sem sundkona og utan laugar. Snæfríður er ung að árum og á bjarta framtíð fyrir sér. Næstu mánuði mun hún einbeita sér að því að ná lágmörkum fyrir Ólympíuleikana í Tokyo 2021. 

Snæfríður er verðugur fulltrúi sundhreyfingarinnar og vel að viðurkenningunni komin.  Við hjá SSÍ óskum Snæfríði innilega til hamingju með að vera valinn Sundkona ársins 2020.


 

 

Sundmaður ársins 2020 er Anton Sveinn McKee

 

Anton Sveinn McKee er 27 ára sundmaður úr Sundfélagi Hafnarfjarðar er valinn sundmaður ársins þriðja árið í röð. Anton býr í Vestur-Virginíuríki þar sem hann stundar æfingar en eins og flestir vita hefur hann tryggt sér rétt til að keppa á Ólympíuleikunum í Tókýó á næsta ári. Hann stefnir að hámarksárangri í Tokyo 2021.

Anton Sveinn náði ótrúlega góðum árangri á árinu 2020. Í nóvember tók Anton í fyrsta skipti þátt á ISL mótaröðinni með liði Toronto Titans. Mótaröðin fór fram í Búdapest en ISL stendur fyrir „The International Swimming League“ en hún var stofnuð árið 2019 og er fyrsta alþjóðlega atvinnumannadeildin í sundi. Þar keppa bestu sundmenn heims. Deildin er liðakeppni og er skipuð 10 liðum sem hvert og eitt er skipað 32 sundmönnum og sendir hvert lið tvo sundmenn í hverja grein.

Anton Sveinn stóð sig gríðarlega vel á mótunum í Búdapest og tvíbætti Norðurlanda – og Íslandsmet í 200m bringusundi og bætti einnig Norðurlandmet og Íslandsmet í 100m bringusundi.

Anton Sveinn er sem stendur í 6. sæti á heimslistanum í 100m bringusundi og í 3. sæti í 200m bringusundi í 25m laug sem er gríðarlega góður árangur.

Anton Sveinn er fyrirmynd jafnt sem sundmaður og utan laugar. Hann hefur sýnt mikla elju en leikarnir í Tókýó verða þeir þriðju sem hann tekur þátt í. Anton hefur verið óspar á að miðla reynslu sinni og þekkingu til ungs og upprennandi sundfólks.

Hann er afar vel að tilnefningunni kominn og við hjá SSÍ óskum Antoni Sveini til hamingju með að vera valinn Sundmaður ársins 2020.

Eins og allir vita þá er að baki ár sem sannanlega hefur ekki verið hefðbundið fyrir íþróttahreyfinguna vegna Covid – 19 faraldursins. Öllum Alþjóðlegum stórmótum var frestað og hlé var gert á æfingum oftar en einu sinni.  Það er því ekki sjálfgefið að ná þeim  árangri sem  Snæfríður og Anton hafa náð á árinu.

Framundan eru spennandi tímar. Evrópumeistarmótið í 50m laug fer fram í Búdapest í maí og Ólympíuleikarnar í Tokyo í júlí 2021. Það verður virkilega skemmtilegt að fylgjast með þeim Antoni og Snæfríðí ásamt öllu okkar frábæra sundfólki á nýju ári.

 

Til baka