Beint á efnisyfirlit síðunnar

Snæfríður Sól setti Íslandsmet í morgun

16.12.2020

 

Snæfríður Sól Jórunnardóttir  setti nýtt Íslandsmet í morgun á Danska Meistaramótinu í 25m laug,sem fram fer í Helsingor í Danmörku þessa dagana. 

Snæfríður Sól synti 200m skriðsund á tímanum 1:57.47 en gamla metið átti hún sjálf, 1:58.42.  Snæfríður syndir í úrslitum eftir hádegi í dag, en hún er með besta tímann inn í úrslitin.

Strangar sóttvarnarreglur eru í Danmörku um þessar mundir, en undanþágur veittar fyrir afreksfólk og efstu deildir.

Danska sundsambandinu var veitt undanþága til að halda Danska meistaramótið og er mótið haldið samkvæmt ströngustu sóttvarnarreglum. Hverjum mótshluta verður skipt í smærri einingar, þar sem 30 keppendur verða inn í sundlauginni á sama tíma, og eingöngu keppt í einstaklings greinum.

 

Hægt er að fylgjast með mótinu hér:

https://www.livetiming.dk/superlive.php?cid=5717&fbclid=IwAR08cx45T30kuM4J79lOm_cO7h3Od10EMZoqPd4whyzkZHrMWDlgK2uRp3o

 

Til baka