Beint á efnisyfirlit síðunnar

Anton Sveinn synti til sigurs í morgun

09.11.2020

 

Anton Sveinn synti til sigurs í 200m bringusundi á ISL mótaröðinni í morgun,  Hann synti á tímanum 2:03.41, Íslands - og Norðurlandamet hans í greininni er 2:01.65, sem hann setti 1.nóv s.l.

Með sigrinum tryggði Anton 12  mikilvæg stig fyrir liðið sitt Toronto Titans.

Anton Sveinn synti einnig 50m bringusund á tímanum 26.90 og varð fimmti í sundinu.

Anton syndir 100m bringusund á morgun þriðjudag, en þetta er síðasta mótið fyrir undanúrslitin í keppninni.

 

Upplýsingar um mótaröðina má finna á heimasíðu ISL https://isl.global/

Til baka