Beint á efnisyfirlit síðunnar

Tilkynning frá LEN

28.03.2020

SSÍ fékk meðfylgjandi bréf í morgun frá LEN

Með þessu bréfi vilja þeir hjá LEN upplýsa okkur um það að því miður er enn ekkert vitað um dagsetningar á sundmótum sumarsins.

Í bréfinu segir meðal annars (í lauslegri þýðingu ) :
„Þegar við erum komin með skýrari mynd um þróun heimsfaraldursins, og hvenær Ólympíuleikarnir verða 2021 og þá hvernig Ólympíuleikar geta haft áhrif á Alþjóðlega dagatalið
ar á meðal 19 FINA heimsmeistarakeppnin, sem nú er fyrirhuguð 16. júlí - 1. ágúst 2021 í Fukuoka, JPN), þá verðum við betur í stakk búin til að skipuleggja LEN sundmótin í Evrópu.

LEN er í nánu sambandi við FINA og er reglulega upplýst um allar ákvarðanir sem þar eru til skoðunar.

Markmið okkar er alveg skýrt, en það er að veita ykkur eins fljótt og auðið er og þá vonandi fyrir lok maí eða byrjun júní nákvæmari upplýsingar.

Forgangsverkefni LEN er að fylgjast náið með aðstæðum og viðhalda öryggi íþróttamanna, þjálfara og allra þeirra sem tilheyra LEN fjölskyldunni.“

 

COVID-19 Update - EC 2020.pdf

Til baka