Beint á efnisyfirlit síðunnar

10 Íslendingar í úrslitum á NM í kvöld

29.11.2019

Norðurlandameistaramótið í sundi hófst í Færeyjum í morgun. Syntar eru undanrásir að morgni og úrslit seinni partinn. Í úrslitum er keppt í junior og senior flokkum, nema í 50m greinunum en þar er keppt í opnum flokki. 6 hröðustu í hvorum flokki komast í úrslit.

Íslendingar á eftirfarandi sundfólk í úrslitum í dag:

  • Patrik Viggó Vilbergsson - 400m skriðsund (junior)
  • Steingerður Hauksdóttir - 50m baksund
  • Kristján Gylfi Þórisson - 200m baksund
  • Brynjólfur Óli Karlsson - 200m baksund
  • María Fanney Kristjánsdóttir - 200m flugsund
  • Gunnhildur Björg Baldursdóttir - 200m flugsund
  • Eva Margrét Falsdóttir - 200m bringusund (junior)
  • Sigurjóna Ragnheiðardóttir - 200m bringusund (junior)
  • Karen Mist Arngeirsdóttir - 200m bringusund
  • Sunna Svanlaug Vilhjálmsdóttir - 200m bringusund
  • Junior og senior sveitir í 4x200m skriðsundi kvenna (bein úrslit)
  • Junior og senior sveitir í 4x200m skriðsundi karla (bein úrslit)

Mótshlutinn hefst kl. 17:30 og verður í beinni útsendingu á Youtubesíðu Færeyska Sundsambandsins

Ráslistar og úrslit mótsins

Til baka