Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kristinn með annað EM lágmark

09.11.2019

Kristinn Þórarinsson úr ÍBR er í hörkuformi á Íslandsmeistaramótinu í 25m laug, sem haldið er í Ásvallalaug þessa helgina.

Kristinn náði sínu öðru EM lágmarki á mótinu þegar hann fór á 24,32 sek í 50m baksundi í undanrásum. Hann á best 24,27 sek, frá því á ÍM25 í fyrra. Íslandsmet Arnar Arnarsonar í greininni er 24,05 og verður því spennandi að sjá hvað Kristinn gerir í úrslitunum seinni partinn.

 

Til baka