Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ingibjörg Kristín með 2 EM lágmörk til viðbótar

09.11.2019

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir úr SH hefur náð tveimur EM lágmörkum til viðbótar á öðrum degi ÍM25 í Ásvallalauginni.

Öðru náði hún í morgun í 50m skriðsundi en þar synti hún fyrsta sprett í 4x50m skriðsundsboðsundi á tímanum 25,53 sek en það er einmitt lágmarkið inn á EM. Það síðara náði hún í 50m flugsundi en hún sigraði greinina nú rétt í þessu á tímanum 26,95 sek en lágmarkið í þeirri grein er 27,18.

Þrjú lágmörk í hús í heildina hjá Ingibjörgu Kristínu þessa helgina.

Til baka