Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hrafnhildur í úrslit á nýju Íslandsmeti

13.12.2017

Fyrsti úrslitahlutinn er nú í gangi á Evrópumeistaramótinu í 25m laug í Kaupmannahöfn.

Hrafnhildur Lúthersdóttir er fulltrúi okkar Íslendinga í þessum hluta en hún synti 50m bringusund í morgun á nýju Íslandsmeti 30,20 sek, sem var sjötti besti tíminn inn í undanúrslitin í greininni sem var að ljúka.

Hrafnhildur bætti um betur því hún synti á 30,03 sek og bætti metið frá því í morgun um 17/100 úr sekúndu! Hún varð þriðja í sínum riðli og með sjötta hraðasta tíma inn í úrslit sem verða seinna í dag!

Allt í beinni á RÚV.

Til baka