Beint á efnisyfirlit síðunnar

EM25 í Köben - 6 íslenskir keppendur

12.12.2017

Evrópumeistaramótið í 25m laug hefst á morgun, miðvikudaginn 13. desember í Kaupmannahöfn. Mótið er haldið í Royal Arena tónleikahöllinni en sundlauginni er komið fyrir á uppbyggðum palli á miðju gólfinu. Danir hafa lagt mikið í umgjörð og skipulagningu mótsins og því von á að mótið verði allt hið glæsilegasta.

Fjögur af íslensku keppendunum sex flugu út í gær, mánudag en þau eru Aron Örn Stefánsson, Hrafnhildur Lúthersdóttir, Ingibjörg Kristín Jónsdóttir og Kristinn Þórarinsson. Snæfríður Sól Jórunnardóttir æfir í Danmörku svo hún hittir hópinn úti og Eygló Ósk Gústafsdóttir æfir í Stokkhólmi og kom þaðan til Köben í gær.

Í fylgd með sundfólkinu okkar eru þau Klaus Jürgen-Ohk og Steindór Gunnarsson þjálfarar, Málfríður Sigurhansdóttir fararstjóri og Unnur Sædís Jónsdóttir sjúkraþjálfari. Hörður J. Oddfríðarson formaður SSÍ flýgur svo út í fyrramálið, miðvikudag, en hann verður liðsstjóri liðsins. Auk þess kemur hann til með að sækja fundi á vegum Norræna Sundsambandsins (NSF) og Evrópska Sundsambandsins (LEN) og sinna fjölmiðlunarstörfum.

Mótinu lýkur sunnudaginn 17. desember en undanrásir eru alla daga kl. 8:30 að íslenskum tíma og undanúrslit og úrslit hefjast kl. 16:00. Dagskrá íslenska sundfólksins er svohljóðandi:

Aron Örn Stefánsson
Föstudagur: 50m skriðsund (skráður tími – 22,54)
Laugardagur: 100m skriðsund ( skráður tími – 48,89)

Eygló Ósk Gústafsdóttir
Laugardagur: 50m baksund (skráður tími – 27,40)
Miðvikudagur: 100m baksund (skráður tími – 58,14)
Föstudagur: 200m baksund (skráður tími – 2:07,04)

Hrafnhildur Lúthersdóttir
Miðvikudagur: 50m bringusund (skráður tími – 30,42)

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir
Sunnudagur: 50m skriðsund (skráður tími - 25,67)
Laugardagur: 50m baksund (skráður tími - 27,68)
Fimmtudagur: 50m flugsund (skráður tími - 27,63)

Kristinn Þórarinsson
Sunnudagur: 50m baksund (skráður tími – 24,96)
Laugardagur: 100m fjórsund (skráður tími – 55,04)
Föstudagur: 200m fjórsund (skráður tími – 2:00,34)

Snæfríður Sól Jórunnardóttir
Laugardagur: 200m skriðsund (skráður tími - 2:00,36)

Boðsund
Laugardagur: 4x50m skriðsund blönduð kyn (NT)
Fimmtudagur: 4x50m fjórsund blönduð kyn (NT)

Úrslit, keppendalista og „live timing“ hér: http://www1.len.eu/?p=10617

Myndir með frétt

Til baka