Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fyrsta embættisverk hjá nýjum íþróttamálaráðherra?

01.12.2017Lilja Dögg Alfreðsdóttir mætti í Laugardagslaug í dag og afhenti verðlaun á Norðurlandameistaramótinu.  Lilja sem tók við embætti mennta- og menningarmálaráðherra í gær lét það verða eitt sitt fyrsta embættisverk eftir lyklaskipti og ríkisstjórnarfund í dag að koma í laugina.  Í fylgd með henni voru Ásta Magnúsdóttir og Eysteinn Alfreð Magnússon sonur Lilju sem einnig fékk að prófa að hengja verðlaunapeninga á norræna sundfólkið. 

Myndir með frétt

Til baka