Beint á efnisyfirlit síðunnar

Snæfríður Sól að gera það gott í Danmörku

28.06.2017

Snæfríður Sól Jórunnardóttir (fd. 2000) keppti á Danska unglingameistaramótinu í 50m laug nú um helgina.

Snæfríður Sól Jórunnardóttir varð danskur unglingameistari í stúlknaflokki 15-17 ára í 200m skriðsundi þegar hún synti á 2:03,19mín. og var einungis 11/100 úr sek. frá stúlknameti Eyglóar Óskar Gústafsdóttur frá 2012.
Snæfríður sigraði með yfirburðum og var rúmum 2 sekúndum á undan stúlku frá Álaborg sem Eyleifur Jóhannesson þjálfar.
Þetta er besti tími Íslenskrar konu í 200m skriðsundi í 50m. laug á árinu.

Á laugardag sigraði Snæfríður Sól í 100m skriðsundi á 0:57,30mín. sem er 33/100 frá stúlknameti Eyglóar Óskar Gústafsdóttur frá 2012.
Aðeins Bryndís Rún Hansen, Eygló Ósk Gústafsdóttir og Ingibjörg Kristín Jónsdóttir hafa synti hraðar í ár.

Snæfríður Sól syndir fyrir Hamar í Hveragerði hér á landi enda æfði hún í Hveragerði fram á 11 ár eða í 6 ár en flutti síðan til Danmerkur og syndir nú fyrir AGF í Árósum.

Á myndinni er Snæfríður Sól ásamt þjálfara sínum, Bjørn Sørensen.

Til baka