Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bryndís syndir í dag

07.12.2016

Bryndís Rún Hansen úr Óðni syndir 100 metra skriðsund í dag uþb kl. 10:35 á staðartíma eða ca 15:35 á íslenskum tíma.  Þá eru einnig á dagskrá tvö boðsund sem Íslendingar taka þátt í, en það eru 4x50 metra fjórsund kvenna og þar synda í þessari röð: Egló Ósk Gústafsdóttir baksund, Hrafnhildur Lúthersdóttir bringusund, Bryndís Rún Hansen flugsund og Jóhanna Gerða Gústafsdóttir skriðsund.  Hitt boðsundið er svo 4x50 metra skriðsund í kynblönduðum flokki þar sem synda tveir karlar og tvær konur.  Ekki er frágengið hvernig sú sveit verður skipuð þegar þetta er ritað. 
Við vonumst til að sjá Bryndísi Rún í milliriðlum, en hún þarf að bæta sig eitthvað til að svo geti orðið og einnig er ágætur möguleiki að kvennasveitin nái í úrslit.  Óvíst er með blönduðu sveitina, en eins og áður hefur verið sagt hér á þessari síðu, þá getur allt gerst.

 

Til baka